Ég veit ekki hvort fólk gerir sér almennt grein fyrir því
hversu mikil starfsemi er hjá íþróttafélagi eins og FRAM. Knattspyrnufélagið
FRAM er auðvitað stórt en það eru mörg félög sem eru með fleiri iðkendur og
mörg með fleiri deildir en við í FRAM.
Ég
ákvað að taka 11 daga tímabil 10-21 feb. og setja upp það helsta sem var/er að
gerast hjá FRAM þessa daga, ég hafði í raun ekkert hugsað út í það hvað væri á
dagskrá þetta er bara venjuleg vinnuvika og gæti verið á hvaða tímabili ársins
Strax á mánudag fór ég að fá fréttir frá foreldrum og
deildum um það sem hafði verið að gerast um helgina ég ákvað því að setja það
sem gerðist þessa 11 daga í svona dagbókar form og bara stutta lýsingu á hvern
atburð. Ég er ekkert að eltast við það sem telst venjulegt svo sem æfingar,
æfingaleiki, fundi, útileiki flokka nema að litlu leiti osfv.
Hugsið ykkur að á bak við alla þessa atburði er ótrúlegur
fjöldi sjálfboðaliða, við starfsmenn FRAM komum t.d sáralítið að þessu
viðburðum nema að einhverju leiti að skipulagningu þeirra. Allt í kringum þessa
leiki og viðburði er meira eða minna unnið af sjálfboðaliðum í FRAM, MAGNAÐ,
finnst ykkur ekki !
Helgina 10-12 feb. turneringar hjá 5 og
6. fl.ka.og kv. handbolta, leikið hjá Gróttu, Víking, Fjölnir og ÍR.
Á föstud. 10 feb. 2-3 fl.ka í handbolta hélt til Akureyrar
og lék þar tvo leiki á föstud. og laugard. Drengirnir fóru frá FRAMhúsi kl.
12:00 á föstud. og komu heim á
laugardags kvöld, þreyttir og glaðir en ákváðu samt að fara beint í bíó.
Hressir drengir.
Á laugard.11. feb. 4.fl.kv leikur 2 heimaleiki í FRAMhúsi.
Á laugard. áttum við sigurvegara
á bikarmóti SKÍ í Bláfjöllum en þá sigraði FRAMarinn Jón Gunnar Guðmundsson
í stórsvigi í flokki 13 ára og varð í 3.sæti í svigi í sama flokki. Flottur strákur sem á mikla framtíð fyrir sér
á skíðunum og ekki leiðinlegt að eiga flottan skíðamann í FRAM !
Taekwondofólkið okkar var um helgina í Trelleborg í Svíþjóð þar sem þau tóku þátt í sterku A móti í
Taekwondo. FRAM sendi 6 keppendur á
mótið og er skemmst frá því að segja að þar vann Vilhjálmur Stefánsson gull í -39 kg flokki í bardaga og Helgi V. Arnarsson fékk svo brons
í - 53 flokki í bardaga.
Vilhjálmur er með 4.kup. rautt belti og keppti í flokki cadet, Helgi er með
1.kup. rautt belti m.3. svörtum röndum og keppti í flokki cadet. Þetta verður
að teljast mjög góður árangur ásamt því
að aðrir keppendur frá okkur í FRAM stóðu sig vel á mótinu og örugglega verði
skemmtilegt og lærdómsríkt að taka þátt
í svona sterku móti. Þetta er til marks
um þá miklu grósku sem núna er í taekwondodeild FRAM og verður spenndi að
fylgjast með á komandi árum. Til hamingju !
Fyrstu
Íslandsmeistarar ársins 2012 litu svo dagsins ljós á laugardag þegar stelpurnar í 5. fl.kv. yngri unnu enn eitt mótið og hafa komið sér þannig fyrir að ekkert lið getur
náð þeim í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn ár, þó tvö mót séu eftir. Stelpurnar hafa ekki tapað leik í vetur og
hafa unnið allt sem þær hafa komist í tæri við og minna þessar stelpur á mfl.kv
hér á árum áður þegar mfl.kv. var búinn
að vinna Íslandsmótið ár eftir ár fljótlega upp úr áramótum . Snillingar og til
lukku stelpur.
Á sunnud. 12. feb. 3 leikir í FRAMhúsi, 4. fl.kv.
og 3. fl.kv. handbolti.
Mfl. karla sigraði svo KR á mánud. 13. feb. Í úrslitaleik
Reykjavíkurmótisins í fótbolta og þar með varð FRAM Reykjavíkurmeistari 2012.
Ekki leiðinlegt að vinna KR 5-0
og liði lítur bara vel út. Ekki spillti fyrir að Sigurður Svavarsson
heiðursfélagi FRAM afhenti verðlaunin og gerði það sérlega vel. Flottir strákar
allir saman. Lengjubikarinn byrjar svo á laugard. 18. feb.
og þá er bara að hirða þá dollu. Egilshöll kl. 17:00. Mæta.
Á sama tíma leik mfl.ka. í handbolta einn mikilvægasta leik ársins og sennilega dýrmætasta leik ársins. Þar
tóku strákarnir á móti HK í undanúrslitum Eimskipsbikarsins í handbolta, það
var ekki leiðinlegt að sjá Sigga Eggerts skjót okkur í úrslitaleikinn sem verður í Laugardalshöll laugardaginn 25.
feb. Sá dagur verður hátíðisdagur hjá
okkur öllum þegar við þrömmum í höllina, finnum allt bláa dótið okkar og
syngjum og tröllum ÁFRAM FRAM eða FRAMarar......., Þar verða allir að mæta og
hjálpa okkur að vinna BIKARINN í ár.
Glæsilegt drengir !
Á þriðjud.14. feb.
lék 2. fl. ka á Íslandsmótinu í handbolta við HK og var leikið í
FRAMhúsi er skemmst frá því að segja að
okkar menn tók mfl. ka til fyrirmyndar og unnu nokkuðð örugglega 33-25 eftir að hafa verið yfir í hálfleik
15-12 . Flottur leikur strákar.
Á fimmtud. 16. feb. var leikinn forleikur að „bikarúrslitum“ í FRAMhúsinu en þar áttust við bikarliðin
FRAM og Haukar en núna var leikurinn hluti af Íslandsmótinu. Leikurinn var ekkert sérstakur og vonandi
ekki það sem koma skal. Tap fyrir Haukum staðreynd.
Á föstud. 17. feb.
lék 4.fl.kv. í undanúrslitum í
Eimskipsbikarnum og var leikið í FRAMhúsi. Eins og gefur að skilja var þetta
leikur eins og úrslitaleikir eiga að vera fullur af drama og spennu. 9-3 í
hálfleik en þegar 90 sek. voru eftir var
staðan 13-13 og spennan óbærileg. En okkar stúlkur kláruðu leikinn og unnu að
lokum sigur 15-13 og eru þar með komnar í úrslitaleikinn í Höllinni 26. feb. Frábært, sjáumst þá.
Á laugard. 18 –19. feb.
ætlar 6. fl.ka. í fótbolta að
gista í Íþróttahúsi FRAM, halda
fótboltamót ( sem þeir kalla „snillingamótið“), svo verður stuð pizzur,
bíómynd ofl. undir vökulum augum foreldra og þjálfara. Það verður örugglega
fjör hjá þessu snillingum og ýmislegt brallað í húsinu. Góða skemmtun drengir.
Á laugardag 18. feb.
er svo æfingamót í Taekwondo í
FRAMhúsi þar sem yngri iðkendur FRAM
koma saman og halda skemmtilegt innanfélags mót með Breiðabliks krökkum. Á
eftir ætla allir að borða saman pizzu og ræða málin, það verður því tekið á því
um helgina. Mótið byrjar kl. 10:00 í
litlasalnum í FRAMhúsi.
Íþróttaskóli 3-6 ára barna í FRAM bæði í Ingunnarskóli og Álftó. Hrikalega gaman og þar ættu allir koma við 6 ára og yngri.
Á laugard. 18. feb. byrjar
svo Reykajvíkurmótið í
yngrflokkunum í fótbolta, 5. fl.kv.
mun ríða á vaðið og etja kappi við Víkinga
kl. 12:00. Á Víkingsvelli.
Á laugard. 18. feb. leika 2 og 3. fl.ka. leiki í FRAMhúsi
og eru þessir leikir hluti að Íslandsmótinu í handbolta.
Á laugard. 18. feb. fyrsti leikurinn í Lengjubikarnum Mfl.ka FRAM – Selfoss kl. 17:00 í Egilshöll, láttu sjá þig.
Á sunnud.19. feb.
verða leikir í FRAMhúsi í 4 og 3
fl.ka. auk þess sem 7. fl. ka. í fótbolta ætlar að vera með
fótboltamót og pizzupartý á eftir. Drengirnir hafa eins og svo margir þurft að
þola ýmis veður á síðustu mánuðum og ætla núna að taka létt innan
félagsmót og hafa það inni.
Mánud. 20. feb. kl. 20:00
2. fl.ka. Víkingur – FRAM á
Víkingsvelli, leikur í Reykjavíkurmótinu.
3. fl.kv mun svo á þriðjud. 21. feb. leika til undanúrslita í Eimskipsbikarnum hér í
FRAMhúsi og hefst leikurinn kl. 20:30. FRAM tekur þar á móti FH og ekki þarf að
fjölyrða um mikilvægi leiksins enda bikarúrslitaleikurinn í húfi. Stelpurnar í 3. fl. eiga titil að verja en
þær urðu bikarmeistarar í þessum flokki í fyrra.
3. fl.ka.og 4.fl.kv.
eru kominn í úrslit Eimskipsbikarsins og
munu leika þar sunnudaginn 26. feb. enn
er ekki ljóst hver mótherjinn verður, en þar verður örugglega boðið upp á flottann handbolta og mikið fjör
enda umgjörðin í höllinni alveg dásamleg.
Vonandi endum við með 3 lið í úrslitum þennan dag. ÁFRAM FRAM.
Þetta er bara töluvert og í raun erfitt að hætta því svo er
bikarhelgi í handboltanum um næstu helgi
og fótboltinn að fara á fullt. En til að gefa ykkur smá hugmynd um hvað hægt er
að gera í mars þá taldi ég saman leiki
FRAM í mars 2012, það verða 50 leikir í handbolta, 37 leikir í fótbolta eða samtals
87 leikir í mars.
Það ætti því engum að leiðast á næstunni, bikarhelgin 25-26
feb. og öll þið sem komið að þessu, þið
eruð FRAM ómetanleg.
Sjáumst hress og kát á vellinum.
Kveðja Tóti.