28.3.2003
ALMENNINGSÍÞRÓTTADEILD FRAM stofnuð 26. mars 2003.
Stofnfundur Almenningsíþróttadeildar FRAM var haldinn miðvikudaginn 26. mars í Íþróttahúsi FRAM. 20 manns mættu á stofnfundinn einnig voru mættir fulltrúar ÍBR og ÍSÍ og lýstu yfir ánægju sinni með þetta framtak félagsins en þetta mun vera fyrsta almenningsdeildin sem stofnuð er formlega innan íþróttafélags í Reykjavík.
Hlutverk þessarar deildar er að halda utan um almenningsíþróttir í FRAM svo sem leikfimi, skokk og íþróttaskóla. Markmiðið er að auka þátttöku almennings og ekki síst fólksins í FRAM-hverfinu,
fá foreldra og aðra til að tengjast félaginu og taka þátt í skemmtilegri líkamsrækt. Ýmsar hugmyndir voru ræddar á fundinum svo sem leikfimi fyrir eldri borgara, skokkhópa fyrir kvennahlaup í sumar og að gera jafnvel könnun á áhuga fólksins í hverfinu, hvað er það sem fólk vill ?
Almennigsdeildinn er með fasta æfingatíma í Íþróttahúsi FRAM
mán, mið og föstudaga kl. 17:30. Þar er boðið uppá leikfimi og tækjasal. Áhugsamir eru velkomnir að mæta og kynna sér starfið einnig er hægt að hafa samband við þjálfara deildarinnar Jónu Hildi Bjarnadóttur í síma 5883535/6943571 jonahb@centrum.is.
« Til baka |
Senda á Facebook