28.5.2003
Göngu og skokk námskeið að hefjast á vegum Almenningsdeildar FRAM
ALMENNINGSÍÞRÓTTADEILD FRAM
NÝTT !
GÖNGU OG SKOKK HÓPAR
Mánudaginn 2. júní hefst nýtt námskeið hjá FRAM.
Boðið er upp á skokk og gönguhópa undir leiðsögn þjálfara.
Þjálfari mun gera einstaklingsáætlun fyrir hvern og einn, þannig að allir fái verkefni við hæfi.
Hópurinn mun hittast tvisvar í viku á mánud. og miðvikud.
Kl. 17:30 í Íþróttahúsi FRAM Safamýri 26.
Boðið er uppá göngu og/eða skokk-prógram, aðgang að tækjasal og spennandi námskeið, fyrir fólk sem vill hreyfa sig í skemmtilegum hópi undir leiðsögn þjálfara.
Námskeiðið kostar kr. 5000.- (2 - 30. júní)
Áhugasamir skrái sig hjá Jónu Hildi Bjarnadóttur íþróttakennara og einkaþjálfara í síma 588-3531/694-3571.
Einnig er hægt að mæta á mánudaginn og prufa
Almenningsíþróttadeild FRAM
« Til baka |
Senda á Facebook