Íþróttaskóli Fram hefst í íþróttahúsi Álftamýrarskóla og íþróttahúsi Ingunnarskóla laugardaginn 21. janúar
3ja og 4ra ára börn eru frá kl. 10:45 til 11:45 (fædd ´01-´02)
5 og 6 ára börn eru frá kl. 11:45 til 12:45 (fædd ´99-´00)
Íþróttakennarar verða Jóna Hildur, Pálmi, Íris, Gígja og leiðbeinendur, Halldór Steinar Kristjánsson, Sonja Björg Ragnhildardóttir, Maggý og Guðrún Ásta.
Námskeiðið er á laugardögum og hefst 21. janúar og lýkur 8. apríl (12 tímar).
Verð kr. 6000. (Veittur er systkinaafsláttur 1000 kr. á barn).
Allar nánari upplýsingar eru í síma
533-5600 í íþróttahúsi Fram, Þór
588-3531/694-3571 Jóna Hildur.
Skráning er á staðnum eða í ofangreindum númerum.
Sjáumst hress og kát.