6 - Helga Vala Jónsdóttir
Fæðingardagur: 1986-01-11

Helga Vala er fædd 1986 og er markvörður. Hún er uppalin í Fram og lék með félaginu upp alla yngri flokkana og fyrstu árin í meistaraflokki. 2004-2008 lék hún með Stjörnunni í Garðabæ og tímabilið 2008-9 með FH í Hafnarfirði. Hún „kom heim" sumarið 2009.
Helga Vala á að baki 2 A-landsleiki og um 30 yngri landsleiki með U85 liðinu.
Íslandsmót: Helga Vala varð Íslandsmeistari með Stjörnunni 2007 og 2008.
Bikarmót: Helga Vala varð Bikarmeistari með Stjörnunni 2005 og 2008 og varð í 2. sæti með FH 2009.
N1 deildin: Helga Vala varð Deildarmeistari með Stjörnunni 2007 og 2008.
Deildarbikar: Helga Vala varð Deildarbikarmeistari með Stjörnunni 2007 og 2008 og með Fram 2009.
Fyrsti mfl. leikurinn: Fram - Haukar, 6. apríl 2002
Leikir með mfl. Fram (febrúar 2010): ~75.
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: ~70/0
Evrópuleikir/mörk: 19/0 (4/0 með Fram)