Fram hefur tekið í notkun nýtt skráningar- og greiðslukerfi á netinu. Ekki verða lengur sendir út greiðsluseðlar. Eins og áður verður hægt að greiða með kreditkorti.
Hægt verður að skipta gjaldinu í allt að 3 greiðslur. Einnig geta þeir sem eru með lögheimili í Reykjavík áfram greitt með frístundakorti Reykjavíkur.
Þeir sem vilja greiða með peningum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofur Fram í Safamýri eða Grafarholti.
kt. unglingaráðs er 480604-2450 og reikningsnr. 0114-26-2450 athugið að setja nafn barns og kt. sem skýringu og senda þarf tölvupóst á toti@fram.is
Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barn greiðir fullt gjald en yngra fær 20% afslátt. Afslátturinn reiknast í kerfinu og reiknast 10% af hvoru gjaldi þegar greitt er fyrir seinna barnið.
Hægt er að sækja um æfingastyrk FRAM sem er endurgreiðsla til þeirra iðkenda sem stunda fleiri en eina íþróttagrein yfir árið. Sjá upplýsingar um æfingastyrk á heimasíðu Fram.
Smelltu hér til að ganga frá skráningu/greiðslu eða uppfæra upplýsingar
Samkvæmt reglum handknattleiksdeildar Fram er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.
Nánari upplýsingar veita:
ÞÓR BJÖRNSSON, íþróttastjóri 533 5600, toti@fram.is
DAÐI GUÐMUNDSSON, íþróttafulltrúi í Grafarholti 587-8800, dadi@fram.is