Skráning nýrra FRAMherja
Fjölmargar fyrirspurnir hafa borist okkur um hvernig menn ganga í
hinn virta stuðningsmannaklúbb FRAMherja. Það eru nokkrar leiðir til
þess en einfaldast er að senda tölvupóst
á Jón Sigurðsson, afreksstjóra, þar sem tilgreint er nafn og símanúmer sem hægt er að
ná í viðkomandi til að ljúka skráningu.
Það eru 3 flokkar sem FRAMHERJAR geta tilheyrt:
Brons þeir sem greiða 1.500 krónur á mánuði. 1 miði á hvern
heimaleik í Pepsi deildinni afhentur gegn framvísun skírteinis á
leikdag.
Silfur þeir sem greiða 2.250 krónur á mánuði. 2 miðar á hvern
heimaleik í Pepsi deildinni afhentur gegn framvísun skírteinis á
leikdag.
Gull þeir sem greiða 3.000 krónur eða meira á mánuði. 3 miðar á
hvern heimaleik í Pepsi deildinni afhentur gegn framvísun skírteinis á
leikdag.
Athugið að heimaleikjamiðar eru nú eingöngu afhentir gegn
framvísun FRAMHERJAskírteinis.
Allir sem eru í FRAMHERJUM fá aðgang að kaffi og meðlæti í
hálfleik á heimaleikjum FRAM í Pepsi deildinni.