10 - Hjálmar Þórarinsson
Fæðingardagur: 1986-02-16

Hjálmar Þórarinsson er fæddur 16. október 1986. Hann er sóknarmaður og er alinn upp í Þrótti Reykjavík. Hjálmar lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Þrótti í 1. Deild árið 2002, þá 16 ára gamall. Hjálmar lék með Þrótti í þrjú ár, eða til 2004. Alls lék Hjálmar með Þrótti, 13 leiki í Efstu Deild og gerði í þeim 2 mörk (2003), og 31 leik í 1. Deild og gerði í þeim 7 mörk (2002 og 2004).
Hearts í Skotlandi fékk Hjálmar til liðs við sig haustið 2004. Hjálmar náði að leika 4 leiki með Hearts þá um veturinn, en lenti utan við liðið veturinn 2005-2006 í kjölfar yfirtöku Litháískra fjárfesta, sem gerði Hearts kleift að kaupa urmul af leikmönnum. Í kjölfarið var Hjálmar á reynslu hjá AIK í Svíþjóð og Aalesund í Noregi. Loks var Hjálmar lánaður til Raith Rovers í skosku 2. Deildinni í September 2006. Hjálmar stóð sig vel með Raith Rovers og skoraði 2 mörk í 5 leikjum í Oktober og Nóvember. Hjálmar lék 3 U21 landsleiki árið 2006, þar af tvo í byrjunarliðinu.
Hjálmar er margreyndur unglingalandsliðsmaður og hefur leikið 6 U21 landsleiki, 10 U19 landsleiki, og 17 U17 landsleiki. Hjálmar skoraði 4 mörk fyrir U19 ára landsliðið og 12 mörk fyrir U17 ára liðið. Hjálmar er annar markahæstur með U17 ára landsliðinu frá upphafi, en sá markahæsti er Þorbjörn Atli Sveinssson Framari með 17 mörk.
Hjálmar gekk til liðs við Fram í janúar 2007, en Fram fékk leikmanninn lánaðan frá Hearts í 1 ár með forkaupsrétt að þeim tíma loknum.
Hjálmar byrjaði vel með Fram og skoraði mark í sínum fyrsta leik gegn Víkingi, sem var svo dæmdur Fram tapaður. Hjálmar skoraði reyndar í þremur fyrstu leikjum sínum með Fram: Í Deildarbikarnum 2007 gerði hann eitt mark gegn Fjölni (2. leikur) og tvö mörk þegar Fram lagði Þrótt (3. leikur).
Hjálmar lék 17 leiki með Fram í Landsbankadeildinni 2007. Hann var í hópi markahæstu manna með 7 mörk. Hjálmar gerði sitt fyrsta Deildarmark fyrir Fram í Keflavík í 6. umferðinni. Hann byrjaði tímabilið sem framherji en fór fljótlega yfir á vinstri kant. Hjálmar gerði eitt eftirminnilegasta mark mótsins gegn Keflavík á Laugardalsvellinum í 15. umferð, með þrumuskoti utan teigs.
Hjálmar gerði svo nýjan samning við Fram eftir tímabilið og verður hjá Fram 2008 og 2009. Hann lék alla 12 leiki Fram í Reykjavíkurmóti og Deildabikar og gerði 6 mörk.
Hjálmar var einn fjögurra leikmanna Fram sem lék alla 22 leiki liðsins í Landsbankadeildinni 2008. Hann gerði sex mörk fyrir Fram sumarið 2008 og hafði þá alls gert 13 mörk fyrir Fram í Landsbankadeildinni (2007 og 2008). Hjálmar gerði auk þess eitt bikarmark þetta sumar og var það hans fyrsta á ferlinum hér á Íslandi.
Framan af móti 2009 hélt Hjálmar áfram að skora fyrir Fram og var talinn með betri sóknarmönnum deildarinnar. Hann gerði 4 mörk fyrir Fram í fyrstu 10 umferðunum og eitt bikarmark að auki. Alls urðu deildarmörkin 7 talsins þetta sumar. Síðasta mark hans þetta sumar var hans 20. í Efstu Deild fyrir Fram. Mark hans gegn KR snemma sumars var valið eitt af tólf fallegustu mörkum sumarsins af Stöð2sport.
Fyrsti mfl. leikur: 8. febrúar 2007, gegn Víkingi R, Reykjavíkurmóti
Hjálmar lék sinn 100. meistaraflokksleik fyrir Fram í fyrsta mótsleik ársins 2010, þegar Fram lagði Fjölni 1-0 í Reykjavíkurmótinu 24. janúar.
Leikir með mfl. Fram (24.1.2010): 100
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 69/22
Evrópuleikir/mörk: 4/0