18 - Hólmbert Aron Friðjónsson
Fæðingardagur: 1993-04-19

Hólmbert Aron Friðjónsson kom til Fram frá HK 17.júlí 2011. Hann er sóknarsinnaður miðjumaður. Hann hafði áður vakið athygli fyrir góða frammistöðu á kantinum hjá HK. Hólmbert er stór og sterkur og býr yfir mikilli tækni. Hann skoraði 5 mörk í 20 leikjum fyrir HK 2010 og spilaði tíu leiki fyrir liðið 2011, áður en hann gekk í Fram.
Við komuna í Fram þvertók Hólmbert fyrir að Fram væri að falla um deild, en Fram var neðst á þeim tímapunkti. Það reyndust orð að sönnu. Hólmbert lék 9 leiki með Fram, flesta sem varamaður.
Hólmbert gerði sitt fyrsta mark fyrir Fram gegn Víkingi Ólafsvík í Deildabikarnum (3-2) 10. mars 2012 en alls urðu mörkin þrjú hjá honum í því móti.
Hólmbert hefur leikið sex leiki með U19 ára landsliðinu og hefur gert 2 mörk í þessum sex leikjum, sem voru allir utan einn eftir komuna í Fram. Þá lék Hólmbert 4 leiki með U17 ára liðinu árið 2009 og gerði þar 1 mark.
Fyrsti mfl. leikurinn: Gegn Víking R. í Deildinni (1-0) á Víkingsvelli 18. júlí 2011
Meistaraflokksleikir: 22 (1.5.2012)
Leikir/mörk í Deild og Bikar með Fram: 9/0
Evrópuleikir/mörk: 0/0