11 - Almarr Ormarsson
Fæðingardagur: 1988-02-25

Almarr Ormarrsson er miðju- og sóknarmaður að upplagi. Hann er upp alinn hjá KA á Akureyri og kom þaðan til Fram 22. júlí 2008. Almarr hóf að leika með meistaraflokki KA árið 2005 og lék alls 54 leiki með liðinu í Deild og Bikar og gerði samtals átta mörk. Framan af sumri 2008 var hann fastamaður í liði KA. Almarr lék þá 11 leiki í 1. Deild og gerði þrjú mörk áður en hann fór til Fram.
Almarr er bróðursonur Þorvaldar Örlygssonar þjálfara Fram og sonur sjálfs Ormarrs Örlygssonar, sem varð Íslandsmeistari með Fram árin 1986 og 1988, og Bikarmeistari með Fram árin 1985 og 1987.
Ormarr varð svo einnig meistari með KA árið 1989.
Almarr kom inn á sem varamaður í tveimur leikjum eftir komuna í Fram, áður en hann var í byrjunarliði í fyrsta sinn gegn KR (0-2) 17. ágúst 2008.
Fyrsta mark Almarrs fyrir Fram kom á góðum tíma, eða í dramatískum 2-1 sigri Fram á Keflavík í lokaumferð Deildarinnar 2008. Sá sigur tryggði Fram sæti í Evrópudeild UEFA, fyrsta Evrópusæti Fram í 17 ár.
Almarr stimplaði sig svo rækilega inn sumarið 2009, þegar hann gerði 9 mörk í Deild, Bikar og Evrópukeppni. Þar af voru sex í deildinni,
tvö í bikar (gegn Njarðvík) og 1 í UEFA-bikarnum gegn The New Saints.
Almarr fékk viðurkenningu á lokahófi Fram 2009 fyrir að vera markahæstur í meistaraflokki það tímabilið, hann gerði alls 9 mörk í Deild, Bikar og Evrópukeppni.
Almarr byrjaði tímabilið 2010 á því að verða markahæstur Framara í Reykjavíkurmótinu með 3 mörk (gegn Fylki 3-3, Leikni 1-0i og KR 2-4). Hann gerði átta mörk í 22 leikjum í Íslandsmótinu, sem er það mesta sem hann hefur skorað á einu keppnistímabili. Almarr gerði þrennu í 3-2 sigri Fram á Selfossi og var það fyrsta þrenna Framara í Efstu Deild síðan 2001.
Almarr lék 11 landsleiki með U19 ára liði Íslands 2005-2007. Hann var svo valinn í U21 árs landsliðið eftir komuna í Fram. Hann gerði 1 mark í 8-0 sigri á San Marínó haustið 2009. U21 vann hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar 2010, þegar það tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2011, og vann m.a. þáverandi Evrópumeistara Þýskalands 4-1 í Kaplakrika. Ísland þurfti umspils leiki gegn Skotum í október til að komast á EM og þar kom Almarr inn á sem varamaður í fyrri leiknum og tryggði Íslandi 2-1 sigur á Laugardalsvellinum, með þrumuskoti af löngu færi. Almarr var í lokahópnum í úrslitum EM 2011 en kom ekki inn á í leik. Almarr spilaði alls 9 U21 landsleiki og gerði í þeim 2 mörk.
Almarr var áfram fastamaður í liði Fram 2011. Hann lék sinn 100. mfl leik og fór fram úr Ormarri föður sínum i leikjafjölda (105 mfl. leikir). Almarr fetaði síðan í fótspor karlsins og lék hægri bakvörð seinni hluta mótsins, þegar Fram átti góðan endasprett.
Fyrsti mfl. leikurinn: Gegn HK í Landsbankadeildinni (2-0) á Kópavogsvelli 28. júlí 2008
Meistaraflokksleikir: 118 (1. 10. 2011)
Leikir/mörk í Deild og Bikar með Fram: 82/19
Evrópuleikir/mörk: 4/1