14 - Hlynur Atli Magnússon
Fæðingardagur: 1990-09-11

Hlynur er varnar/miðju maður, hann þykir þó bestur í hafsentinum. Hlynur Atli er upp alinn í Fram.
Hlynur lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki í Reykjavíkurmótinu 2008. Hann fékk svo alvöru tækifæri síðsumars 2009, þegar hann kom nokkrum sinnum inná í Deildinni, auk þess að taka þátt í tveimur Evrópuleikjum.
Hlynur Atli var í leikmannahópi Fram 2010 og lék 15 leiki í Efstu Deild. Hann gerði sitt fyrsta mark fyrir Fram gegn Grindavík í 2. umferðinni, í 2-0 sigri Fram.
Hlynur Atli varð svo nánast fastamaður í liði Fram sumarið 2011. Hann tók stöðu miðvarðar seinni part sumars, þegar Kristján Hauksson meiddist. Hlynur Atli og Allan Lowing mynduðu gott miðvarðarpar á góðum endaspretti Fram. Hlynur Atli gerði sitt annað mark fyrir Fram, og aftur lentu Grindvíkingar í kappanum þegar Fram vann rándýran 2-1 sigur í Grindavík í næst síðustu umferðinni.
Fyrsti mfl. leikur: Reykjavíkurmóti, gegn Víkingi R. (5-0), þann 17.1.2008.
Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 72
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 45/2
Evrópuleikir/mörk: 2/0