Content


Leikmadur


21 - Guðmundur Magnússon

Fæðingardagur: 1991-06-10

Leikmaður

Guðmundur Magnússon er fæddur 10. júní 1991. Hann lék bæði í sókn og á miðju í yngri flokkum Fram.

Hann lék sinn fyrsta mfl. leik þegar Fram mætti Val 16. júlí 2007, en það var annar af tveimur leikjum hans með með Fram í Landsbankadeildinni það ár.

Guðmundur skrifaði undir nýjan 3 ára samning 28. október 2008. Guðmundur fór þá út til Englands í viku tíma eftir áramót til reynslu hjá íslendingaklúbbnum Reading.

Guðmundur lék einn leik með Fram vorið 2008, þegar hann kom inn á sem varamaður í úrslitaleik Deildabikarsins gegn Val (1-4). Guðmundur kom við sögu í 6 leikjum í deild og einum bikarleik um sumarið.

Guðmundur haslaði sér svo völl í liði Fram sumarið 2009. Hann gerði sitt fyrsta mark gegn Fylki í Árbænum (1-2 tap) og fékk nokkur tækifæri eftir það. Tvö mörk fylgdu í kjölfarið og bæði í sigurleikjum, síðasta markið gegn Keflavík (5-0) og svo mark gegn Stjörnunni (3-2). Alls lék Guðmundur 11 leiki í Pepsi-deildinni.

Guðmundur skrifaði undir samning við Fram í september 2009, sem gildir út árið 2012.

Guðmundur var í hópnum vorið 2010. Hann kom inn á sem varamaður og tryggði Fram 1-0 sigur á FH í Lengjubikarnum 10. apríl. Sá sigur tryggði Fram endanlega farseðilinn í 8-liða úrslit. Guðmundur hélt áfram að koma af bekknum í Deildinni 2010 og gerði eitt mark.

Guðmundur lék 8 leiki í Deildinni fyrri part sumars 2011, auk tveggja bikarleikja. Hann gerði 2 mörk fyrir Fram í Bikarnum áður en hann samdi við Víking Ólafsvík 15. júlí.

Fyrsti leikur með mfl. Fram: gegn Val í Landsbankadeildinni 16. júlí 2007 (0-2).

Leikir með mfl. Fram (15.7.2011): 75

Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 51/6

Evrópuleikir/mörk: 0/0



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l