22 - Ívar Björnsson
Fæðingardagur: 1985-01-12

Ívar Björnsson er miðjumaður eða framherji og er fæddur 12. janúar 1985. Hann kom til Fram frá Fjölni fyrir tímabilið 2005 og lék 10 leiki með Fram í Efstu Deild. Ívar á 5 U19 landsleiki og 6 U17 landsleiki fyrir Ísland.
Ívar lék 16 leiki með Fram sumarið 2006. Ívar gerði 2 mörk þegar Fram vann HK í Kópavogi, 3-2. Þá gerði Ívar 1 mark og lagði upp tvö þegar hann kom inn á sem varamaður í 4-0 sigurleik Fram gegn Fjölni snemma sumars 2006.
Ívar skrifaði undir nýjan samning við Fram í lok janúar 2007, og er sá til tveggja ára. Ívar lék flesta leiki með Fram vorið 2007, oftast sem fremsti maður. Hann gerði 4 mörk í 6 leikjum í Deildarbikarnum. Ívar gerði 2 mörk fyrir Fram í Efstu Deild 2007, annað gegn ÍA á Akranesi í 3. umferð (2-2) en hitt þegar hann tryggði Fram 1-1 jafntefli gegn KR á Laugardalsvellinum. Hann lék 17. leiki af 18 fyrir Fram í Landsbankadeildinni, flesta sem varamaður.
Ívar lék sex af tólf leikjum Fram í Deildabikar og Reykjavíkurmóti vorið 2008, og gerði einnig nýjan samning við Fram. Hann átti svo eitt sitt besta tímabil 2008, þegar hann gerði 8 mörk í 22 leikjum í Efstu Deild og var einn fjögurra Framara til að leika alla leiki liðsins.
Það gekk hægar hjá Ívari 2009 og voru meiðsli aðal sökudólgurnn. Hann lék 13 leiki og gerði 3 mörk. Ívar er sérfræðingur í því að skora gegn Fjölni og gerði eitt mark gegn þeim í 2-1 sigri Fram í Grafarvogi fyrri part sumars. Hann hélt því áfram í Deildabikarnum 2010 og gerði bæði mörkin í 2-1 sigri Fram 16. apríl, en með þeim sigri tryggði Fram sér efsta sætið í sínum riðli.
Ívar skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Fram í nóvember 2009.
Ívar gerði 8 mörk í Efstu Deild árið 2010 og tvö mörk í Bikarnum að auki. Hann er kominn með 21 mark í Efstu Deild fyrir Framara, fjögur mörk í bikarnum og tvö í 1. Deild árið 2006. Ívar gerði eitt glæsilegasta mark sumarsins í 2. umferð með hjólhestaspyrnu, í 2-0 sigri gegn Grindavík. Hann varð markahæsti Framarinn 2010, með 15 mörk í öllum keppnum, þar af 10 í Deild og Bikar. Hann lék sinn 150. mfl leik seinni part sumars.
Ívar var nær alveg frá vegna meiðsla keppnistímabilið 2011 og lék aðeins 5 leiki í öllum keppnum.
Fyrsti mfl. leikur: Gegn KA (3-3) 26. febrúar 2005, í Deildarbikarnum.
Leikir með mfl. Fram (19.4.2011): 161
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 112/27
Evrópuleikir/mörk: 4/0