23 - Jón Guðni Fjóluson
Fæðingardagur: 1989-04-10

Jón Guðni er varnarmaður og gekk til liðs við Fram frá Hrunamönnum í Desember 2004.
Jón Guðni lék með 2. flokki sumarið 2006, og lentu þeir í þriðja sæti á Íslandsmótinu. Þá urðu þeir Íslandsmeistarar innanhúss 2006 og 2007.
Hann lék sinn fyrsta mfl. leik með Fram gegn Fjölni í Deildarbikarnum 10. mars 2007. Hann kom þá inn á sem varamaður og lék stöðu vinstri bakvarðar með sóma. Hann lék svo 3 leiki með Fram í Landsbankadeildinni og 1 bikarleik sumarið 2007.
Jón Guðni skrifaði undir 3 ára samning við Fram um jólaleytið 2007. Hann lék 7 leiki í vormótunum 2008.
Jón Guðni lék 3 deildarleiki 2008 en var oftar í byrjunarliði fyrri part árs 2009, þegar hann lék stöðu miðvarðar.
Sumarið 2009 sprakk Jón Guðni út með Fram. Hann lék sem miðvörður í fjarveru Auðuns Helgasonar í vorleikjunum og stóð sig vel.
Gamanið byrjaði svo í Evrópuleik Fram gegn Sigma Olomouc í Tékklandi um mitt sumar, þegar Jón Guðni kom Fram yfir með skallamarki, en hann lék miðvörð vegna þess að Auðun var í leikbanni. Jón Guðni átti fantaleiki þegar Fram vann Keflavík 5-0 og svo Val 2-1 nokkrum dögum síðar. Hér var hann farinn að spila sem miðjumaður.
Jón Guðni varð þriðji markahæstur Framara 2009. Hann gerði sitt 3. mark í deildinni gegn Stjörnunni og hélt áfram að skora reglulega til mótsloka. Hann endaði með 5 mörk skoruð í deildinni og 1 mark í bikarkeppninni, gegn Fylki. Jón Guðni var valinn leikmaður 15. umferðar af fotbolta.net fyrir hans þátt í meðferð Fram á Keflavík (5-0) sumarið 2009. Jón Guðni skrifaði loks undir nýjan samning við Fram og gildir sá út 2012.
Jón Guðni hélt áfram að slá í gegn 2010. Hann lék 17 leiki af 22 í Efstu Deild en missti nokkuð út vegna leikbanna og svo veikinda í mótslok. Hann gerði 5 mörk í Efstu Deild, þrátt fyrir að spila mest sem miðvörður. Hann varð þriðji í kjöri Fréttablaðsins á leikmanni ársins og varð þar hlutskarpastur varnarmanna. Jón Guðni var líka valinn í lið ársins í Efstu Deild á lokahófi knattspyrnumanna. Hann var sem fyrr undir smásjá erlendra liða, og fór á reynslu til PSV Eindhoven í Hollandi, Bayern Munchen í Þýskalandi og Fortuna Dusseldorf, Þýskalandi. Loks var hann kallaður í A-landsliðið fyrir vináttuleik gegn Ísrael í nóvember.
Jón Guðni varð fastamaður í U21 árs landsliði Íslands 2009-2010. Það lið vann hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar 2010, þegar það tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2011. Liðið lék fanta vel í undankeppninni þar sem það lagði m.k. Evrópumeistara Þýskalands 4-1 í Kaplakrika. Síðan tóku við umspils leikir gegn Skotum í október, en þar var Jón Guðni fjarri góðu gamni vegna botnlangakasts. En U21 liðið fór áfram og leikur í úrslitakeppninni sumarið 2011.
Jón Guðni lék 8 leiki í Pepsi-Deildinni og tvo bikarleiki með Fram 2011, áður en hann kvaddi og fór til belgíska félagsins Germinal Beerschot í lok júní.
Fyrsti mfl. leikur: 10. mars 2007, gegn Fjölni í Deildarbikarnum.
Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 103
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 59/11
Evrópuleikir/mörk: 4/1