26 - Jón Orri Ólafsson
Fæðingardagur: 1985-03-11

Jón Orri Ólafsson er varnarmaður, sem getur spilað bakvörð og miðvörð. Hann er upp alinn hjá Fram og komst í leikmannahóp Fram Efstu Deild árið 2004.
Hann var lánaður til 2. Deildarliðs Aftureldingar tímabilið 2005, þar sem hann lék 13 deildarleiki af 18.
Jón Orri vann sér inn sæti í vörn Fram fyrri part sumars 2006. Jón Orri spilaði mest sem miðvörður en bráð sér á hægri kantinn eða í hægri bakvörð þegar þess þurfti. Jón Orri lék 11 leiki með Fram í 1. Deild og var verðlaunaður sem sá leikmaður Fram sem tók mestum framförum keppnistímabilið 2006.
Jón Orri var frá vorið 2007 eftir að hafa undir gengist aðgerð á hálsi. Hann var í leikmannahópnum um sumarið og lék einn leik í Deildinni og einn bikarleik.
Jón Orri lék 9 leiki með Fram í vormótunum 2008, m.a. í úrslitaleik Deildabikarsins gegn Val (1-4). Hann lék svo lengst af stöðu hægri bakvarðar sumarið 2008 og skilaði henni með sóma. Honum gekk erfiðar 2009 og var oft á tíðum á bekknum eða utan hóps. Jón Orri kom þó inn í liðið í lokaleikjum haustsins 2009. Hann lék síðan hægri bakvörð í bikarúrslitaleiknum þegar Daði Guðmundsson forfallaðist skyndilega rétt fyrir leik.
Jón Orri lék 18 af 22 leikjum Fram í Efstu Deild 2010, flesta sem varamaður. Hann lék sinn 100 mfl. leik um haustið. Svipað var uppi á teningnum 2011 þegar hann tók þátt í helming leikja Fram.
Jón Orri hefur leikið 1 leik með U19 landsliðinu og 9 U17 leiki.
Fyrsti mfl. leikur: 9. febrúar 2007, gegn Fylki, Reykjavíkurmóti
Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 123
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 74/0
Evrópuleikir/mörk: 1/0