29 - Joe Tillen
Fæðingardagur: 1986-12-15

Joe Tillen heitir fullu nafni Joseph Tillen og er fæddur árið 1987. Hann kom til Fram í maí 2008. Joe er yngri bróðir Sam Tillen. Sam gekk til liðs við Fram í ársbyrjun 2008 og var Joe til reynslu í kjölfarið. Þegar þeir bræður voru báðir á mála hjá Chelsea þótti Joe efnilegri að því að sagt er. Joe 183 cm að hæð, vinstri fótar leikmaður sem getur bæði leikið sem kant- og miðjumaður. Frá 16-20 ára aldurs var Joe í knattspyrnuakademíunni hjá Chelsea en hann hefur einnig verið á mála hjá Milton Keynes Dons á Englandi.
Joe var fastamaður í liði Fram 2008-2010. Hann gerði þá nokkur mikilvæg mörk. Sigurmark Fram gegn KR í undanúrslitum Bikarsins 2009 var dæmigert fyrir Joe. Hann fékk boltann inn fyrir vörnina og lagði hann mjög snyrtilega framhjá markverði andstæðinganna. Joe gerði 2 af 3 mörkum sínum 2010 gegn Valsmönnum.
Joe lék sinn fyrsta mfl. leik með Fram gegn Akranesi 20. maí 2008 (0-1).
Sumarið 2010 lék Joe 20 af 22 leikjum Fram í Efstu Deild. Hann gerði tvö mörk í Deildinni og eitt í bikarkeppninni.
Joe var samningslaus eftir tímabilið. Menn náðu ekki saman um nýjan samning og því kvaddi Joe Fram 24. nóvember 2010.
Leikir með mfl. Fram (15.10.2009): 71
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 63/10
Evrópuleikir/mörk: 3/0