1 - Ögmundur Kristinsson
Fæðingardagur: 1989-06-19

Ögmundur er markvörður og er fæddur árið 1989. Hann er alinn upp í Fram.
Hann varð varamarkvörður meistaraflokks sumarið 2006, og lék 1 leik í fjarveru aðalmarkvarðar, gegn Haukum á Ásvöllum. Sá leikur vannst 3-0 og stóð Ögmundur sig mjög vel í þessum fyrsta leik, sem kom til vegna mjög snöggra veikinda aðalmarkvarðar.
Ögmundur var áfram í leikmannahópi Fram vorið 2007 og tók þátt í 8 leikjum á undirbúningstímabilinu. Ögmundur lék hins vegar með 2. flokki Fram á Íslandsmótinu 2007, þar sem Fram varð í 5. sæti.
Ögmundur var varamarkmaður Fram 2008 og 2009 og spilaði talsvert af vorleikjum. Hann var valinn í U19 landsliðið vorið 2008 og U21 landsliðið skömmu síðar.
Ögmundur lék sinn fyrsta leik í Efstu Deild í lokaumferðinni 2009, þegar hann kom inn á hálfleik gegn Þrótti og stóð sig vel. Hann var varamarkvörður áfram 2010. Þá um haustið varð ljóst að hann tæki við aðal markvarðarstöðu Fram fyrir tímabilið 2011. Enda lék hann alla 11 leiki Fram í Reykjavíkurmótinu og Deildarbikarnum 2011, og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína.
Vorið 2011 sýndi Ögmundur strax að hann væri traustsins verður í Fram markinu. Fram átti erfitt uppdráttar framan af sumri þrátt fyrir að Ögmundur verði oft vel. Hann var í lykilhlutverki þegar Fram reif sig af botninum síðsumars og var valinn besti leikmaður Fram á lokahófi félagsins. Aðeins fjögur lið í Efstu Deild fengu á sig færri mörk en Fram (28) sumarið 2011. Ögmundur gerði nýjan samning við Fram fyrir keppnistímabilið 2012 í kjölfar þessarar góðu frammistöðu.
Ögmundur Kristinsson var valinn íþróttamaður Fram fyrir 2011. Valið var rökstutt með eftirfarandi: " Ögmundur var einn af máttarstólpum mfl. karla árið 2011. Ögmundur átti mjög gott ár með mfl. karla þar sem hann stóð í markinu á sínu fyrsta ári sem aðalmarkvörður. Ögmundur var valinn besti leikmaður flokksins á lokahófi knattspyrnudeildar í haust. Ögmundur er góð fyrimynd bæði sem leikmaður og félagsmaður í Fram."
Ögmundur á að baki 1 landsleik með U18 ára liði Íslands, 1 leik með U19 ára landsliðinu og 1 U21 leik.
Fyrsti mfl. leikur: 8. apríl 2006, gegn KA, Deildarbikarinn
Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 59
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 27/0
Evrópuleikir/mörk: 0/0