1 - Hannes Þór Halldórsson
Fæðingardagur: 1984-04-27

Hannes Þór Halldórsson er markvörður og er fæddur 1984. Hann er upp alinn í Leikni í Breiðholtinu og var með þeim til 2004 og lék þá tvo leiki í 2. Deild . Hann lék í marki Aftureldingar í Mosfellsbæ sumarið 2005, þar sem hann lék alla 18 leiki liðsins í 2. Deild.
Hannes skipti í Stjörnuna 2006 og lék alla leiki Garðabæjarliðsins það sumar. Hann lék m.a. mjög vel í báðum leikjum Fram og Stjörnunnar og var valinn í U21 landslið Íslands. Hannes gekk til liðs við Fram í október 2006 og fékk það verðuga hlutverk að taka við markvarðarstöðunni af Gunnari Sigurðssyni.
Hannes meiddist á mjöðm í desember 2006 og var lengi frá æfingum og keppni af þeim sökum. Hann lék sinn fyrsta mfl. leik með Fram gegn FH í 8-liða úrslitum Deildarbikarsins 2007, þann 23. apríl á Framvellinum.
Hannes náði sér af meiðslunum í tæka tíð fyrir Íslandsmótið 2007 og varði m.a. vítaspyrnu gegn Víkingi í 2. umferð. Hannesi óx ásmegin síðsumars, eins og reyndar Framliðinu öllu. Hannes varði vel í lokaleikjum Fram og var t.d. maður leiksins í 16. umferð gegn Fylki í Árbæ (1-1), þar sem hann hélt Framliðinu á floti. Hannes lék alla 18 leiki Fram í Efstu Deild, á sínu fyrsta ári með liðinu.
Hannes mætti sterkur til leiks vorið 2008 og lék alla leiki Fram í Reykjavíkurmóti og Deildabikar. Hann varði m.a. sérlega vel þegar Fram vann Breiðablik í undaúrslitum Deildabikarsins. Sá leikur var hans 30. fyrir Fram. Hannes fékk þó ekki rönd við reist í Úrslitunum gegn Val, þar sem Valsmenn unnu 4-1. Honum gekk svo vel með Fram í Íslandsmótinu 2008, þar sem Framvörnin var sterk og lykillinn að 3. sætinu um haustið, sem tryggði félaginu sæti í Evrópudeild UEFA.
Hannes Þór lék sitt þriðja tímabil með Fram 2009 og var nú tvisvar kallaður til liðs við A-landsliðshópinn. Hann varði oft vel en lenti stundum í vandræðum seinni part sumars. Hannes Þór varði eina vítaspyrnu þegar Fram tapaði í bráðabana gegn Breiðabliki 4. október.
Hannes Þór var valinn tvisvar í landsliðshóp karla haustið 2009 en á enn eftir að koma inn á í landsleik.
Hannes lék alla leiki Fram í Efstu Deild 2010, fjórða árið í röð. Hann varð jafnframt 50. Framarinn til að leika 120 mfl. leiki fyrir félagið.
Hannes kvaddi Fram í október 2010 og gekk til liðs við KR.
Fyrsti mfl. leikurinn: Gegn FH í Deildarbikarnum í apríl 2007.
Leikir með mfl. Fram (1.10.2010): 120
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 94/0
Evrópuleikir/mörk: 4/0