Content


Leikmadur


4 - Kristján Hauksson

Fæðingardagur: 1986-02-03

Leikmaður

Kristján Hauksson er varnarmaður. Hann er upp alinn hjá Fram og lék sinn fyrsta leik í Efstu Deild fyrir félagið árið 2003. Árið 2004 lék hann 4 leiki, en var svo fastamaður sem miðvörður sumarið 2005, þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára.

Kristján var í sigurliði Fram í 1. Deild 2006 og lék áfram með liðinu 2007 en lék reyndar ekki nema helming deildarleikjanna 2006 og 13 leiki af 18 2007.

Kristján gekk til liðs við Valsmenn, samningslaus, fyrir tímabilið 2008 en hafði þá leikið 90 mfl. leiki með Fram, þar af 42 í Efstu og 1. Deild. Þrátt fyrir að vera á mála hjá Val frá haustinu 2007 til vors 2009 lék Kristján aldrei deildarleik með Val. Hann var strax lánaður til Fjölnis, þar sem hann lék 21 deildarleik og gerði tvö mörk, auk þess að spila 5 leiki Fjölnis í Bikarkeppninni. Fjölnir var þarna undir stjórn Ásmundar Arnarsonar, sem lék með Fram 1997-2002. Eftir að hafa verið í hóp Valsmanna vorið 2009 varð úr að hann gekk aftur í Fram í byrjun maí 2009 og samdi til þriggja ára.

Kristján varð fljótlega lykilmaður í Fram eftir heimkomuna og varð fyrirliði Fram upp úr miðju sumri. Hann lék sinn 100. mfl. leik um mitt sumar gegn Fjölni í 2-1 sigri Fram í Grafarvoginum.

Kristján lék 19 leiki af 22 í Efstu Deild sumarið 2010 og var traustur í vörninni. Kristján gerði sitt fyrsta mark fyrir Fram í Efstu Deild í Keflavík snemma sumars í 1-1 jafntefli. Hann var svo í liði ársins hjá Morgunblaðinu um haustið, en skömmu áður lék hann sinn 150. mfl. leik fyrir félagið.

Kristján lék 15 fyrstu leikina í Efstu Deild 2011 en meiddist á hné og missti af lokasprettinum.

Fyrsti mfl. leikur með Fram: 2003

Kristján hefur leikið 9 U19 landsleiki og 8 U17 landsleiki fyrir Ísland.

Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 181

Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 114/1

Evrópuleikir/mörk: 4/0



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l