Content


Leikmadur


6 - Halldór Hermann Jónsson

Fæðingardagur: 1984-10-01

Leikmaður

Halldór Hermann Jónsson er vinnusamur miðjumaður.

Hann kom til Fram frá Fjarðarbyggð fyrir tímabilið 2008. Hann hafði leikið með þeim í sjö ár og verið fastamaður í liði þeirra. Halldór lék 25 leiki (deild & bikar) 2007 og skoraði í þeim 2 mörk með Fjarðabyggð. Alls lék Halldór Hermann 137 leiki með Fjarðabyggð í neðri deildunum þremur og bikarnum, og gerði þá samtals 10 mörk.

Halldór Hermann var einn af fyrrum leikmönnum Þorvaldar Örlygssonar hjá KA og Fjarðabyggð sem kom til Fram með gamla þjálfaranum, líkt og Jón Gunnar Eysteinsson og Almarr Ormarrsson.

Halldór vann sér sæti í byrjunarliði Fram vorið 2008 og tóku stuðningsmenn Fram honum strax vel. Halldór Hermann lék 11 af 12 leikjum Fram í Deildabikar og Reykjavíkurmóti. Hann var einn fjögurra leikmanna Fram sem lék alla 22 leiki liðsins í Efstu Deild 2008.

Hann var áfram fastamaður 2009 og gerði þá fyrstu mörk sín fyrir Fram, tvö í 5-0 sigri á Keflavík í ágúst. Þá lék hann alla fjóra Evrópuleiki sumarsins, gegn The New Saints og Sigma Olomouc.

Halldór Hermann lék 21 af 22 leikjum Fram í Efstu Deild 2010. Hann gerði eitt mark og eitt mark í bikarnum að auki. Hann var traustur á miðjunni sem fyrr og lék sinn 100. meistaraflokk fyrir Fram um haustið.

Dóri lék miðjunni sumarið 2011 og stóð fyrir sínu allt sumarið. Hann missti aðeins af einum leik, og það var leikbann vegna 4 gulra spjalda. Halldór Hermann framlengdi samning sinn við Fram um haustið, til tveggja ára. Hann hefur verið lykilmaður undanfarin ár og þykir vinnusemi hans og dugnaður vera til eftirbreytni.

Fyrsti mfl. leikur: 17. janúar 2008, gegn Víkingi R, Reykjavíkurmóti

Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 137

Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 96/4

Evrópuleikir/mörk: 4/0



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l