Content


Leikmadur


5 - Kristinn Ingi Halldórsson

Fæðingardagur: 1989-04-08

Leikmaður

Kristinn Ingi er miðjumaður og upp alinn í Fram. Kristinn Ingi lék með 2. flokki sumarið 2006, og lentu þeir í þriðja sæti á Íslandsmótinu. Þá urðu þeir Íslandsmeistarar innanhúss 2006 og 2007.

Hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í Deildarbikarnum árið 2006. Hann spilaði svo næst mfl. leik í Reykjavíkurmótinu 2007. Kristinn gerði sitt fyrsta mark með meistaraflokki Fram í sínum þriðja meistaraflokksleik, en hann kom inn á sem varamaður gegn Fjölni 10. mars 2007. Hann gerði þá síðasta mark Fram í 7-2 sigri. Hann lék þrjá leiki með Fram í Landsbankadeildinni 2007 og einn bikarleik, auk þess að leika með 2. flokki Fram.

Kristinn Ingi kom við sögu í þremur mótsleikjum vorið 2008 en náði ekki að spila í deild eða bikar. Kristinn Ingi var lánaður til Hamars í 2. Deild sumarið 2009. Hann gerði 7 mörk í 18 leikjum með Hamar, sem hélt sæti sínu í Deildinni með flottum lokaspretti.

Kristinn Ingi kom til baka í Fram haustið 2009. Hann gerði eitt mark í Lengjubikarnum vorið 2010 þar sem hann kom við sögu í flestum leikjanna. Hann lék svo níu leiki í Efstu Deild 2010 og einn bikarleik um sumarið, flesta sem varamaður.

Kristinn Ingi stimplaði sig inn sem byrjunarliðsmaður sumarið 2011. Hann gerði 2 mörk í Deildinni og lék flest alla leiki liðsins. Líkt og flestir aðrar Framarar átti hann sínar bestu stundir í lokaumferðunum og gerði þá t.d. mikilvægt sigurmark gegn Keflavík í 1-0 sigri Fram á Laugardalsvellinum.

Krstinn Ingi á að baki þrjá U18 ára landsleiki og 3 U19 ára landsleiki.

Leikir með mfl. Fram (1.10..2011): 64

Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 35/2

Fyrsti mfl. leikur: vorið 2006, Deildarbikarinn



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l