12 - Sigurður Hrannar Björnsson
Fæðingardagur: 1993-12-26

Sigurður Hrannar Björnsson er markvörður og er fæddur 1993. Hann kom til Fram frá Hollandi í mars 2007, og lék með yngri flokkum Fram 2007-2010.
Sigurður Hrannar gerði tveggja ára samning við Fram í desember 2009. Hann var á bekknum í Reykjavíkurmótinu 2010 en kom þó ekki inn á. Sigurður Hrannar lék einn landsleik með U18 ára liði Íslands sumarið 2010.
Sigurður lék með 2. flokki sumarið 2011. Hann lék alla 18 leiki Fram í B-riðli, sem varð í 2. sæti og vann sig upp í A-riðil.