Content


Leikmadur


24 - Tómas Leifsson

Fæðingardagur: 1985-05-01

Leikmaður

Tómas Leifsson gekk liðs við Fram 20. október 2009 en hann var samningslaus eftir að hafa verið hjá Fjölni árin þar á undan.

Tómas ólst upp hjá FH en færði sig til Fjölnis haustið 2005 eftir að hafa verið þar lánsmaður um sumarið. Tómas lék 86 deildar- og bikarleiki með Fjölni 2006-2009 og gerði 29 mörk.

Hann er miðjumaður og spilar yfirleitt á hægri kantinum.

Yngri bróðir Tómasar, Víðir lék með Fram 2005-2007 en sá fór til Fylkis fyrir tímabilið 2008.

Tómas gerði sitt fyrsta mark fyrir Fram í 3-1 sigri á Selfossi í Lengjubikarnum 21. febrúar 2010. Hann var fastamaður í byrjunarliðinu um vorið. Tómas var svo aðeins fjórar mínútur að gera sitt fyrsta Deildamark fyrir Fram er hann skoraði gegn ÍBV í fyrstu umferð Íslandsmótsins (2-0 fyrir Fram). Hann lék 20 af 22 leikjum Fram í Efstu Deild og gerði 2 mörk. Auk þess lék hann 4 bikarleiki og gerði þar 1 mark.

Fyrsti mfl. leikur fyrir Fram: 24.1.2010 gegn Fjölni (1-0), Reykjavíkurmótinu

Tómas byrjaði ágætlega með Fram 2011 og gerði 2 mörk í 10 leikjum í Deild og Bikar. Hann var hins vegar frá vegna meiðsla seinni part sumars.

Tómas gekk til liðs við Selfoss í byrjun janúar 2012.

Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 51

Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 34/5

Evrópuleikir/mörk: 0/0



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l