7 - Daði Guðmundsson
Fæðingardagur: 1984-02-11

Daði Guðmundsson er fæddur 11. febrúar 1981. Hann er uppalinn hjá Fram og var m.a. fyrirliði meistaraliðsins í 4. flokki árið 1995, auk þess að leika með 3. flokki, sem einnig varð meistari þetta ár. Daði hefur á ferli sínum leikið flestar stöður á vellinum að markinu undanskildu, m.a. báðar bakvarðarstöðurnar, báða kanta og sem miðjumaður.
Daði lék fyrst með Fram í Efstu Deild árið 1998 og hefur verið leikmaður Fram æ síðan. Hann gerði sín fyrstu mörk í Efstu Deild árið 2000, í 3-1 heimasigrum á Leiftri og Grindavík, af öllum liðum. Daði var fastamaður Framliðsins í “Flóttanum Mikla” árið 2001, þegar Fram hlaut 16 stig í síðustu 9 leikjunum eftir aðeins 4 stig í þeim 10 þar á undan, og bjargaði sér frá falli.
Daði var fastamaður í liði Fram 2006, hann lék 17 leiki af 18 með Fram í 1. Deild. Hann lék lengst af stöðu vinstri vængbakvarðar. Daði hélt sæti sínu árið 2007 og lék þá stöðu vinstri bakvarðar í 4-3-3 leikkerfinu undir stjórn Ólafs Þórðarsonar.
Daði hefur mest spilað sem hægri bakvörður hin síðari ár. Þó verða undantekningr á því, t.d. gegn Þrótti um mitt sumar 2009. Daði lék þá sem djúpur miðjumaður og gerði sitt fyrsta mark í 6 ár með þrumuskoti, 3-1 fyrir Fram urðu lyktir leiksins.
Daði lék 21 leik fyrir Fram í Deildinni 2010 og gerði eitt mark í 3-1 sigri á Val í næst síðustu umferðinni. Hann komst í 4. sætið yfir leikjahæstu leikmenn með meistaraflokki með 318 mfl. leiki og varð tólfti Framarinn til að leika 150 leiki í Efstu Deild.
Daði lék sinn 323. leik með meistaraflokki þegar Fram vann Fjölni 1-0 í Lengjubikarnum 25. febrúar 2011. Þar með varð hann annar leikjahæsti Framarinn frá upphafi. Hann missti talsvert úr vegna meiðsla sumarið 2011 en lék 13 leiki í Deild og Bikar. Eftir tímabilið var hann kominn með 163 leiki í Efstu Deild fyrir Fram, sem gerði hann að 8. leikjahæsta Framaranum þar frá upphafi.
Daði hefur leikið 1 U21 landsleik, 6 U19 leiki og 18 U17 landsleiki.
Fyrsti mfl. leikur: 1997
Meistaraflokksleikir: 340 (1. 10. 2011).
Leikir/mörk fyrir Fram í Deild og Bikar: 210/9
Evrópuleikir/mörk: 4/0
200. leikur Daða með mfl.: 3-2 sigur gegn Þrótti, Deildarbikarnum 24. apríl 2007.
300. leikur Daða með mfl.: 2-3 tap gegn KR, Efstu Deild 10. júní 2010
Daði er leikjahæstur núverandi leikmanna Fram og sá annar leikjahæsti frá upphafi.