9 - Sam Tillen
Fæðingardagur: 1985-04-16

Sam heitir Samuel Lee Tillen fullu nafni. Hann fæddist 16. apríl 1985 í Reading Berskshire á Englandi. Sam er snöggur örvfættur leikmaður sem getur leikið sem vinstri bakvörður eða vængmaður.
Sam kom upp úr unglingaakademíu Chelsea. Fyrir tímabilið 2005/2006 í Englandi, eftir að hafa leikið með unglinga- og varaliði Chelsea, skipti hann um félag og fór til Brentford. Á árunum 2005-2008 lék hann 67 leiki með aðalliði Brentford og skoraði í þeim 1 mark. Á þessum tíma lék hann mest sem vinstri bakvörður en leysti einnig fleiri stöður. Brentford er gamalgróið lið á Englandi og þar hafa leikið meðal annarra Ívar Ingimarsson, Hermann Hreiðarsson og Ólafur Gottskálksson.
Sam gekk til liðs við Fram í febrúar 2008 og gerði eins árs samning við félagið. Óhætt er að segja að þessi knái vinstri fótar maður hafi slegið í gegn. Sam lékk alla leiki Fram í Deildabikarnum og stóð sig með miklum sóma, og gerði m.a. glæsimark gegn Haukum í lokaleik riðlakeppninnar. Sam gerði tvö mörk fyrir Fram í 21 deildarleik, auk þess að leggja upp nokkur til viðbótar. Frammistaða Sam í 4-1 sigrinum á FH er eftirminnileg, þar sem hann skóp fyrsta mark Fram með hættulegri hornspyrnu og skoraði svo sjálfur úr víti. Fyrsta deildarmark Sam fyrir Fram var einmitt beint úr hornspyrnu, sigurmark 1-0 gegn Fjölni í Grafarvogi snemma sumars. Þá lék bróðir Sam, Joe Tillen, með Fram 2008-2010 en fór til Selfyssinga fyrir tímabilið 2011.
Sam var áfram lykilmaður með Fram 2009 og gerði t.d. eitt mark í hvorum leik þegar Fram lagði The New Saints í Evrópudeild Uefa með tveimur 2-1 sigrum í 1. umferð. Hann var vítaskytta liðsins og skilaði því hlutverki vel. Sam er baráttumaður og var manna duglegastur við að ná sér í gul spjöld hjá Fram. Því fór svo að Þorvaldur þjálfari sparaði kappann síðustu metrana svo hann gæti spilað Bikarúrslitaleikinn gegn Breiðablik 3. október. Hann gerði annað mark Fram í Bikarúrslitaleiknum, þegar hann skoraði úr vítaspyrnu.
Sam stóð fyrir sínu með Fram 2010, og sást greinilega þegar hann vantaði. Sam lék 19 af 22 leikjum Fram í Efstu Deild og gerði eitt mark. Hann átti oft margar rispur upp vinstri kant (þó hann spili vinstri bakvörð) og átti m.a. eina af stoðsendingum ársins gegn Val á Hlíðarenda í 3-1 sigri Fram í 21. umferð. Hann lék sinn 100. mfl. leik um haustið og er lang leikjahæstur erlendra leikmanna í sögu Fram.
Sam lék sitt fjórða ár með Fram 2011 og varð fyrirliði liðsins þegar Kristján Hauksson meiddist í ágúst. Sam var svo lykilmaður í góðum endasprett Fram, sem kom í kjölfar þess að þrír landar hans komu til liðsins.
Fyrsti mfl. leikur: 24. febrúar 2008, gegn KA í Deildarbikarnum (1-1).
Leikir með mfl. Fram (1.10.2011): 135
Leikir/mörk með Fram í Deild og Bikar: 93/6
Evrópuleikir/mörk: 4/2