Fram hefur tekið í notkun nýtt skráningar- og greiðslukerfi á netinu. Ekki verða lengur sendir út greiðsluseðlar. Þeir sem hafa ekki þegar gengið frá greiðslu æfingagjalda 2012 eru vinsamlegast beðnir um að ganga frá greiðslu á netinu.
Eins og áður verður hægt að greiða með kreditkorti. Hægt verður að skipta gjaldinu í allt að 6 greiðslur. Einnig geta þeir sem eru með lögheimili í Reykjavík áfram greitt með frístundakorti Reykjavíkur. Þeir sem vilja greiða með peningum eru beðnir um að hafa samband við skrifstofur Fram í Safamýri eða Grafarholti.
Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barn greiðir fullt gjald en yngra fær 20% afslátt.
Hægt er að sækja um æfingastyrk FRAM sem er endurgreiðsla til þeirra iðkenda sem stunda fleiri en eina íþróttagrein yfir árið. Sjá upplýsingar um æfingastyrk á heimasíðu Fram.
Samkvæmt reglum knattspyrnudeildar Fram er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.
| Aldur/Flokkur |
Árgjald 2012 |
Vor og Sumargjald 2012 |
Vorgjald 2012 |
Sumargjald 2012 |
Haust 2012 |
| 3. flokkur f. 96 og 97 |
59.000.- |
44.000.- |
21.000.- |
28.000.- |
15.000.- |
| 4. flokkur f. 98 og 99 |
59.000.- |
44.000.- |
21.000.- |
28.000.- |
15.000.- |
| 5. flokkur f. 00 og 01 |
53.000.- |
40.000.- |
20.000.- |
25.000.- |
13.000.- |
| 6. flokkur f. 02 og 03 |
48.000.- |
35.000.- |
18.000.- |
22.000.- |
13.000.- |
| 7. flokkur f. 04 og 05 |
42.000.- |
30.000.- |
15.000.- |
20.000.- |
12.000.- |
| 8. flokkur f. 06 > |
25.000.- |
20.000.- |
12.500.- |
12.500.- |
5.000.- |
Nánari upplýsingar veita:
Þór Björnsson, íþróttastjóri 533 5600, toti@fram.is
Daði Guðmundsson, íþróttafulltrúi í Grafarholti 587-8800, dadi@fram.is
Hermann Jónsson gjaldkeri knattspyrnudeildar S. 618-0090,
hermann_jonsson@live.com