Content


Sjóvámót


Knattspyrnufélagið Fram stendur fyrir móti í 5. Flokki drengja og stúlkna dagana 29-30. maí á svæði Fram í Safamýri.

Þetta er í fyrsta skipti sem þetta mót er haldið og stendur metnaður okkar til að gera þetta að flottu móti til framtíðar. 
 
Leikirnir eru 2 x 12 mín að lengd.

Skemmtiatriði og þrautabrautir verða víða um svæðið ásamt veitingasölu.  Liðum utan að landi stendur til boða gisting í Álftamýrarskóla, sem er við hliðina á mótssvæðinu. 
Upplýsingar um úrslit og myndir verða aðgengilegar og uppfærðar reglulega á meðan á mótinu stendur.

Skráning liða fer fram með  því að senda þátttökutilkynningu á knattspyrna@fram.is 

Skráningu þarf að vera lokið  fyrir 10.maí. 

Nýjustu upplýsingar um mótið  verða jafnharðan settar inn á heimasíðuna þegar nær dregur www.fram.is/sjovamot



« Til baka
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l