Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Þetta byrjar vel ! Valkostir
Jón
Skráð: 24. January 2010 22:10
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 31.12.08
Bréf: 16
Staður: Reykjavík
Fram vann Fjölni 1-0 :

Halldór Hermann skoraði .

http://fotbolti.fnserver.net/fullStory.php?action=viewStory&id=86333


Thomsen
Skráð: 24. January 2010 23:38
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 17.12.08
Bréf: 127
Staður: Reykjavík
3 stig er alltaf góð byrjun, en ekki virðist þetta hafa verið samfærandi hjá liðinu ef marka má þessa frétt hjá fotbolta.net.
markið kom á 90mín og bæði lið fengu færi Jón Guðni næstur því að skora eftir stangarskot. en önnur lið hafa verið að tapa stigum gegn minni anstæðingum. fór eitthver á leikinn og gæti komið með eitthvað um hann?
Lilja
Skráð: 25. January 2010 09:53
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 23.06.09
Bréf: 22
Þetta var dæmigerður fyrsti leikur nýs keppnistímabils, þjálfarar þreifa fyrir sér með liðsuppstillingu og leikkerfi og leikmenn í misjöfnu formi. Hjá Fram var Ögmundur í marki í stað Hannesar sem er lítillega meiddur. Bakverðir Daði og Sam og miðverðir Jón Guðni og Kristján. Á miðjunni Halldór, Hlynur og Jón Gunnar og frammi þeir Hjálmar, Almarr og Tómas í 4-3-3/4-5-1 leikkerfi. Fljótlega í seinni hálfleik komu inn þeir Hörður og Guðmundur M. fyrir Hlyn og Tómas og síðasta korterið spiluðu þeir Jón Orri og Alexander fyrir Hjálmar og Almarr.

Í fyrri hálfleik var eina teljandi færið þrumuskot Jóns Guðna af um 30 metra færi í stöng. Í seinni hálfleik voru okkar menn meira í færum en klúðruðu nokkum upplögðum slíkum. Allt stefndi í markalaust jafntefli þegar á lokamínútunni gott spil þeirra Daða og Alexanders lagði upplagt færi fyrir Halldór sem hann afgreiddi laglega í markið.

Lið Fjölnis kom nokkuð á óvart og var alls ekki auðunnið í þessum baráttuleik. Nýju mennirnir hjá okkur verða ekki dæmdir eftir þennan fyrsta leik.
pallivilla
Skráð: 25. January 2010 10:29
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 07.02.09
Bréf: 25
Staður: Reykjavík
Ég fór einnig á leikinn. Ekki verður annað sagt en að leikurinn hafi borið þess merki að um fyrsta alvöru leik var að ræða. Stuttar sendingar oftar en ekki misheppnaðar - en það átti við um bæði lið. Hins vegar áttum við langa og góða kafla í leiknum sem er góðs viti. Strákarnir virkuðu flestir í ágætu líkamlegu formi, sérstaklega Kristján, Halldór og Jón Guðni sem voru að mínu mati bestu leikmenn liðsins í gær.

Leikurinn þróaðist þannig að við héldum boltanum löngum stundum og í þau skipti sem Fjölnir ógnaði marki okkar komu tækifæri eftir langar spyrnur Hrafns í markinu á fljóta framherja og kantmenn Fjölnis sem spiluðu sama kerfi og við 4-3-3/4-5-1. Í seinni hálfleik fengum við þó nokkur færi til að skora úr en Alexander, Guðmundi og Hlyni (að mig minnir) brást bogalistin þegar þeir reyndu allir að lyfta boltanum yfir Hrafn í markinu

Markið gott hjá Halldóri sem skömmu áður hafði sett knöttinn í utanverða stöng Fjölnismanna af örlítið lengra færi. Ekki verður annað sagt en að lykilmenn og nýir menn eigi vonandi mikið inni. En aftur - þetta er nú fyrsti leikur.

Fylkir á föstudag, láta sjá sig og bera liðið augum.
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.131 seconds.

 
  • Sj�va
  • VW
  • BootCamp
  • Sj�v�
  • Sk�rr
  • Landsbanki
  • VW
  • Sj�v�
  • Errea
  • Coke
  • Landsbanki
  • Sj�v�