KristoferK skrifaði:http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=19847&Rodun=U
Eyjamenn heima í fyrstu umferð rétt eins og í fyrra, og síðan heimsókn í kópavoginn.
Fyrsti derby leiktíðarinnar verður svo heimaleikur gegn KR, 31. maí. Valsarana fáum við svo í heimsókn í 10. umferð, 27. júní. Svo förum við í okkar árlegu ferð uppí Vesturbæ 8. ágúst og heimsækjum Val í næst síðasta leik mótsins 19. september.
Við endum svo tímabilið í Laugardalnum gegn FH, 25. september. Ætli það verði ekki úrslitaleikur um hvort liðið hampi Íslandsmeistaratitlinum? :)
Þetta er í 3. sinn í röð sem Fram mætir ÍBV í 1. umferð í Laugardal, séu þau ár talin sem bæði lið hafa verið í Deildinni.
Og það að fá FH í lokaumferðinni ætti að vera tækifæri til að rifja upp leik liðanna í lokaumferðinni 2005....ekki það að útreiðin sem FH fékk 2008 hafi ekki svarað því....
Já og góður Stefán ;-)