Í vetur hefur maður oft velt fyrir sér hvert meðalaldur Framliðsins stefndi, úr því Auðun, Paul og Ingvar hurfu á braut. Ég rýndi því í fæðingarár leikmanna Fram, og taldi til þá leikmenn sem eru samningsbundnir félaginu. Þetta eru þeir 18 leikmenn sem Fram hefur notað í deildabikarnum (
sjá hér), auk Joe Tillen, Rúriks Andra Þorfinnsonar, Björns Orra Hermannssonar og Harðar Björgvins Magnússonar.
Daði Guðmundsson er elstur, fæddur árið 1981- er víst nefndur "Aldursforsetinn" :) Fram er því án þrítugs leikmanns þar til Daði verður 30 ára þann 11. febrúar 2011. Það er síðan athyglisvert að sjá hverjir eru næst elstir o.s.frv., en listinn er hér:
Fæð.ár fjöldi aldur nöfn
1981 1 29 Daði
1982 0 28
1983 0 27
1984 2 26 Hannes Þór, Halldór Hermann
1985 4 25 Ívar, Jón Orri, Sam, Tómas
1986 4 24 Kristján, Hjálmar, Jón Gunnar, Joe
1987 0 23
1988 2 22 Almarr, Alexander Veigar
1989 4 21 Björn Orri, Kristinn Ingi, Jón Guðni, Ögmundur
1990 1 20 Hlynur Atli
1991 1 19 Guðmundur
1992 2 18 Rúrik Andri, Orri
1993 1 17 Hörður Björgvin
Samanlagður aldur þeirra er 497 ár og deilt með 22 gerir það meðal aldur 22,6 ár. Fljótt á litið eru þeir 11 sem eru fæddir fyrir 1987 "gömlu mennirnir" (yeah right) en hinir yngri 11 "strákarnir" fæddir 1988 og síðar...