Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Loksins deildarsigur Valkostir
Stefán P
Skráð: 25. July 2010 23:17
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 21.11.08
Bréf: 270
Staður: Norðurmýri
Það er liðónýtt að vera í ferðalagi úti á landi þegar Fram er að spila í borginni. Fylgdist með leiknum í gegnum stöðuuppfærslur á netinu og bíð spenntur eftir betri umfjöllun hér á spjallinu.

Ljóst er að þessi sigur er gríðarlega mikilvægur. Allt annað en 3 stig hefði þýtt miðjumoð í sumar. Ég gef mér að Keflavík vinni Grindavík á morgun og þá verðum við í fimmta sæti með níu umferðir eftir. Níu stig í Eyjamenn og báðar innbyrðisviðureignirnar búnar eru væntanlega óbrúanlegt bil nema að e-ð mikið klikki hjá ÍBV. Við skulum því ekki eyða orku í að hugsa um þá.

Öðrum liðum eigum við alveg að geta skotið aftur fyrir okkur og mér finnst ekki óeðlilegt að fara fram á að Fram hafni ekki neðar en í þriðja sæti. Til þess verðum við að ná í mörg stig gegn Grindavík og Fylki í tveimur næstu deildarleikjum - helst öll sex stigin.

En fyrst er það formsatriðið gegn KR á fimmtudaginn...
Thomsen
Skráð: 25. July 2010 23:31
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 17.12.08
Bréf: 212
Staður: Reykjavík
Já maður er farinn að sakna þess að komast á Völlinn til að sjá Fram spila,
En ég var að fylgjast með á netinu líka, en það er svo svakalega erfitt oft. en í kvöld var það afslappað.
Gott að sjá að liðið virðist vera komið á beinubrautina aftur, og mjög sætt að vinna Blikana!...

En hvernig er það með útvarp? er það alveg off eða?
við erum komnir með Sjónvarpstöð! þá skemmtilegustu hjá félagsliði á Íslandi.
og er það þá ekki bara útvarpstöð næst fyrir okkur sem eru útá landi?
Grimur
Skráð: 25. July 2010 23:51
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 15.07.09
Bréf: 56
Staður: Reykjavík

Sérlega sannfærandi sigur í kvöld. Og það sem stóð upp úr var vinnusemin í liðinu öllu allan tímann. Þar fór kannski duracell-kanínan Halldór Hermann fremstur allra en Jón Gunnar var einnig mjög drjúgur og saman áttu þeir félagar miðjuna. Síðan var frábært að sjá vinnsluna á Hjálmari sem gaf Blikavörninni aldrei frið. Þegar Hjálmar leggur sig svona fram er hann einfaldlega stórkostlegur leikmaður. Mörk Hjálmars og Jóns voru síðan hvort öðru glæsilegra – en kannski fellur mark Almars undir aðra fegurðarskilgreiningu og mætti heita Sigur viljans eins og fræg bíómynd. En það þarf leikmann eins og Almar til að skora svona mark. Snilld - og nú verður bikarleikurinn rosalegur.
Grimur
Skráð: 25. July 2010 23:55
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 15.07.09
Bréf: 56
Staður: Reykjavík

Annars er ég alveg ósammála því að Keflvíkingar séu endilega að fara að vinna nágranna sína á morgun.
Hannes AJ
Skráð: 26. July 2010 00:00
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 27.11.08
Bréf: 185
Staður: Reykjavík
Grimur skrifaði:

Annars er ég alveg ósammála því að Keflvíkingar séu endilega að fara að vinna nágranna sína á morgun.


Já, ég tek undir þetta Grímur. Grindvíkingar virðast vera að koma til á með Keflvíkingar hafa verið að gefa eftir. Vona samt að Grindvíkingar fari ekki að gera neinar rósir gegn okkur í næsta deildarleik :-0
einarsh
Skráð: 26. July 2010 00:03
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 15.09.09
Bréf: 4
Í heildina skynsamlega spilaður leikur. Enginn átti slæman leik og líklega besti leikur Jóns Gunnars. Vörnin þétt og Halldór H jafngóður og alltaf. Það er unun að horfa á Hjálmar spila; hvar sjá menn tækni á borð við þetta nema landsliði Spánar? Þetta lið með valinn mann í hverju rúmi á að gera atlögu að efsta sætinu.

En bara eitt: Ef við blasir að einhver leikmaður er orðinn þreyttur, af hverju þá að bíða með skiptingu? Biðin endaði með marki í kvöld.
SuperMario
Skráð: 26. July 2010 10:22

Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 02.12.08
Bréf: 110
Staður: Reykjavik
Alveg sammála flestu hér samt verð ég að taka eitt út og er það þessi svokallaða "besta" frammistaða Jóns Gunnars.
Hvað eru menn að fara með hana? Hann var slakur í kvöld og þurfti Halldór að hlaupa fyrir tvo, menn hreinlega gengu fram hjá honum trekk í trekk og hann vann varla skallabolta alla leikinn. Ekki fer drengurinn í tæklingar og
ég skil hreinlega ekki hvers vegna hann Toddi setti ekki Hlyn inn á snemma í seinni hálfleik við hefðum getað notað mann með smá sens fyrir sendingum þarna á miðjuna því ekki voru þessar kýlingar hans Jóns neitt til að hrópa húrra fyrir og ekki var neitt sérstakt að sjá drenginn missa boltann ítrekað rétt fyrir utan teig. En hvað um það þá er nóg komið af þessu rausi í mér, flottur sigur og vonandi er þetta það sem koma skal..

Football, bloody hell!
guffi
Skráð: 26. July 2010 13:07
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 22.06.09
Bréf: 4
Mér finnst Jón Gunnar vera að bæta sig og hafi verið allt ílagi í gærkvöldi og óþarfi að setja útá hann í jöfnu og góðu Framliði. Hvað Halldór Hermann varðar þá hleypur hann alltaf á við tvo, ef ekki meir og það því ekkert óvanalegt í gær.
Björninn
Skráð: 26. July 2010 14:05
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 31.05.09
Bréf: 4
Sætur sigur! Mér fannst þó allur kraftur detta úr leikmönnum í seinni hálfleik eða þá að Blikar hafi loks ákveðið að mæta til leiks. Jafnvel á 83' min var maður smeykur um að þeir kæmust af alvöru inn í leikinn og mundu jafna.

Afhverju var breytt um taktík í seinni hálfleik og boltanum dúndrað fram í stað þess að spila? Það var enginn frammi til að taka við boltanum. Afhverju er ekki búið að stoppa það að láta Hannes sparka beint á markmann andstæðinga? Hvar var yfirvegunin í leikmönnum FRAM?

Mér fannst þetta vera komið í sama stresspakka og á móti KR en vonandi nær þessi sigur að slaka á taugum leikmanna.

Dómgæslan er og hefur verið arfaslök sérstaklega vs fylki, stjörnunni, og þessum leik. Ætla ekki nánar út í hana hér þar sem SuperMario hefur stofnað mjög góðan þráð.
SuperMario
Skráð: 26. July 2010 14:46

Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 02.12.08
Bréf: 110
Staður: Reykjavik
guffi skrifaði:
Mér finnst Jón Gunnar vera að bæta sig og hafi verið allt ílagi í gærkvöldi og óþarfi að setja útá hann í jöfnu og góðu Framliði. Hvað Halldór Hermann varðar þá hleypur hann alltaf á við tvo, ef ekki meir og það því ekkert óvanalegt í gær.

Ef ég væri að gagnrýna drenginn þegar að liðið er að spila illa væri það eitthvað betra??
Mér finnst þessi drengur eiga að geta verið feykna sterkur þarna á miðjunni en hann tekur bara allt of lítið til sín og er enginn sérstakur ballwinner.
Þannig að í svona leik eins og í gær í seinni hálfleik hefði ég vilja sjá Hlyn koma þarna á miðjuna til að reyna koma þessum boltum í áttina að okkar mönnum...

Football, bloody hell!
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.568 seconds.

 
  • Sjóvá
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • N1
  • Sportis
  • Sjóvá
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Bootcamp
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún