|
|
 Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 02.12.08 Bréf: 110 Staður: Reykjavik
|
Eftir að hafa farið á leikinn í gær fór ég að hugsa um hvernig á því stæði að mér þætti nánast því alltaf að okkur vegið í þessari blessuðu dómgæslu? Ein ástæðan er jú sú að ég er FRAMARI en samt finnst mér fátt skemmtilegra en að fara á leik þar sem menn fá sama treatment frá dómara leiksins og leikmenn geta því unnið í því að spila fótbolta. Hitt er að ég sem er handhafi þessa blessaða dómarakorts KSÍ er áhugamaður um störf þessara blessuðu manna sem eru svona að "gera sitt besta"...
Fyrir þá sem fóru á leikinn í gær þá þarfnast þetta nánast því engra útskýringa en fyrir ykkur sem ekki fóru þá var þetta svona lógískt framhald af þessu sem KSÍ hefur boðið okkur upp á í sumar jú og síðustu sumur.
Mér er bara gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvernig þessi blessaði maður í rauða gallanum getur gengið af velli með kassan sperrtan og brosandi út að eyrum. Þessi sigur okkar í gær er mun sætari ef maður hugsar til þess að ALLIR 50 - 50 dómar duttu Blika megin og einnig þeir sem hefðu átt að vera 100% okkar meginn. Hversu oft hafa þessir dómar dottið okkur í hag í sumar? Hversu oft hefur "grófasti leikmaður" deildarinnar Jón Guðni Fjóluson fengið þessa meðferð sem Blikarnir fengu í gær? Jón Guðni fékk spjald í gær fyrir sína fyrstu tæklingu þar sem leikmaður Blika var á leiðinni að hliðalínunni og engin teljandi hætta var á ferðum. En Olli Bliki fékk að taka Daða niður með mjög grófri tæklingu jú og fékk gula spjaldið eftir að hafa brotið af sér tvisvar áður og viti menn fimm mín seinna er hann búinn að strauja Halldór á miðjunni og er sleppt! Óli hafði vit á að taka hann af velli en í seinni hálfleik var Jón Orri að sleppa í gegn og Blikarnir brugðu á það ráð að strauja hann jú og viti menn að maðurinn sem tók það að sér var einnig með gult á bakinu, allt látbragð leimannsins var á þann veg að hann vissi hvað væri á leiðinni en ekkert kom spjaldið! Ég vil benda mönnum á rauða spjaldið sem Jón Guðni fékk gegn Val þar var nú varla um gríðarlegt fólskubrot að ræða og Fram nýbúið að skora þar virtist þessari óskiljanlegu meðaumkunnarreglu ekki alveg vera framfylgt. Kannski af því að Jón Guðnir svona ROSALEGA góður og hinir eru bara svona hobbýistar?? Af hverju virðast þessi "VAFA" atriði þegar að við eigum í hlut oftast falla með hinum liðunum( sbr þetta fullkomlega löglega mark sem við skoruðum gegn ÍBV )? Ég hélt að við FRAMARAR borguðum það sama inn á þessa leiki í deildinni? Eigum við þá ekki heimtingu á sömu meðhöndlun frá þessari blessuðu dómara-elítu?
Ég hef beðið eftir að Toddi kæmi inn á þetta í þessum viðtölum eftir leikina en hann hefur væntanlega lært það að ekkert breytist nema þá helst á verri veg ef menn dirfast að gagnrýna þessa blessuðu kalla í rauðu,gulu og svörtu göllunum. En í gær gerðist það að Toddi sagði eitthvað og var það kannski gert vegna þess að við unnum og lítum því ekki út eins og súrir taparar. Meira að segja Maggi Gylfa og Tómas tóku upp hanskan fyrir okkur í gær!!!!
Það sem mér finnst verst er að hvergi í fjölmiðlum er minnst á hversu slakur dómarinn var í gær og hef ég fylgst vel með því hvernig dómararnir er meðhöndlaðir eftir þessa leiki. Það virðist vera að vöntunin í stéttina sé að valda því að hush hush sé sett á alla umfjöllunina um þeirra störf og er það miður, þjálfara eru reknir, leikmennn settir á bekkinn en áfram ráfa þessir kallar um völlinn eins og hauslausar hænur og dæma leik eftir leik án afleiðinga. Ég er að velta fyrir mér hvort að aðkoma Gylfa Orra að þessari dómarakommúnu KSÍ geri það að verkum að ekki sé hægt að ræða um dómgæslu í leikjum gegn FRAM? Ég hef enga trú á að þessi tuðpóstur minn eigi eftir að breyta einhverju nema því að ég er búinn að losa um þetta sem hefur verið að plaga mig í svolítinn tíma. En ef að þetta blessaða KARMA er til þá hljóta þessar blessuðu lukkudísir að fara detta okkar megin.
Football, bloody hell!
|
|
Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 27.11.08 Bréf: 185 Staður: Reykjavík
|
Heyr! Heyr! (Þori varla að segja meir ;-)
|
|
Staða: Hálf atvinnumaður Hópar: Member
Skráði sig: 05.12.08 Bréf: 259 Staður: Heiðargerði
|
Super Mario
Ég gæti ekki verið meira sammála öllu sem þú skrifaðir. Þetta er hellað dæmi. Við höfum td. ekki ennþá fengið víti í allt sumar og í gær voru amk. 2 tilefni til slíks gjörnings.
|
|
 Staða: Hálf atvinnumaður Hópar: Member
Skráði sig: 24.11.08 Bréf: 350 Staður: Reykjavík
|
Tek heilshugar undir hvert orð hér að ofan. Þessir einstaklingar sem valdir eru af KSI til að sjá um að leikurinn fari eðlilega og heiðarlega fram virðast fæstir vera starfi sínu vaxnir. Ég hef lengi haft þá skoðun að það sé skárra að hafa lélegan dómara en óheiðarlega, en reynsla mín á liðnum árum er sú að verulega vanti uppá óhlutdrægni margra þessara manna þegar Fram á í hlut. Það er ömurleg tilfinning að sitja og horfa uppá þessa vesalings menn gera sjálfa sig að fíflum og vera í ofanálag svo hörundsára að þegar þeir fá að heyra sannleikann um sig þá fara þeir í fýlu, og meðvirka hjörðun í jakkafötunum með KSÍ merkið í barminum sektar síðan mann og annann í kjölfarið fyrir að gagnrýna bjánann.
|
|
Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 23.06.09 Bréf: 81
|
Þegar ég sá fyrirsögnina að þessum pistli var ég eiginlega alveg sammála henni, en við lestur hans komst ég að raun um að hið gagnstæða vakti fyrir höfundi.
Þrátt fyrir að nokkrir hafi tekið hér undir með áliti höfundar ætla ég hér að leyfa mér að hafa aðra skoðun í þessu máli. Það er mín skoðun að dómgæsla Magnúsar Þórissonar í þessum leik hafi verið með betri dómgæslum í Framleik sem ég hef séð í sumar. Mér finnst nefnilega Magnús yfirleitt beita fremur skynsemi í mati á aðstæðum í dómgæslu sinni en að fara alveg eftir bókstaf laganna. Skynsemi er t.d. nokkuð sem Kristinn Jakobsson lét ekki þvælast fyrir sér í mati sínu á aðstæðum þegar hann rak Jón Guðna útaf gegn Val.
Auðvitað gat Magnús dómari rekið þennan nr. 11 útaf eftir seinna brotið á innan við mínútu. En hann mat það greinilega svo að brotið hefði ekki verið svo gróft að leikmaðurinn verðskuldaði ekki annað tækifæri. Hann lét leikmanninn líka greinilega vita að hann væri á síðasta sjens frá sér. Auðvitað sá reyndur þjálfari eins og Ólafur Kristjánsson hvert stefndi og skipti leikmanninum útaf. Hvað varðar brotið á Jóni Orra undir lok leiksins er ég sammála því að leikmaður Breiðabliks í því tilfelli hefði átt að fá seinna gula spjald sitt og þar með rautt. Þar urðu dómaranum á mistök.
Þrátt fyrir þetta fannst mér dómarinn koma vel frá leiknum í gær, hann leyfði leiknum að fljóta vel, beitti hagnaðarreglu vel og var ekki að stöðva leikinn í tíma og ótíma. Þá er ég á þeirri skoðun að einhverjir dómarar hefðu verið fljótir að dæma mark Almarrs af og metið það svo að markvörður Blika hefði haft hendur eða hendi á knettinum áður en Almarr setti hann í markið.
Það má ekki gleyma því að knattspyrnuleikur er skemmtilegastur þegar ellefu leikmenn spila á móti ellefu. Dómarar hafa í sumar því miður gert of mikið af því að taka ákvarðanir í æsingi og rifið rauða spjaldið upp úr rassvasanum án umhugsunar. Það var ekki gert í gær og því ber að fagna.
|
|
 Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 02.12.08 Bréf: 110 Staður: Reykjavik
|
Lilja skrifaði:Þegar ég sá fyrirsögnina að þessum pistli var ég eiginlega alveg sammála henni, en við lestur hans komst ég að raun um að hið gagnstæða vakti fyrir höfundi.
Þrátt fyrir að nokkrir hafi tekið hér undir með áliti höfundar ætla ég hér að leyfa mér að hafa aðra skoðun í þessu máli. Það er mín skoðun að dómgæsla Magnúsar Þórissonar í þessum leik hafi verið með betri dómgæslum í Framleik sem ég hef séð í sumar. Mér finnst nefnilega Magnús yfirleitt beita fremur skynsemi í mati á aðstæðum í dómgæslu sinni en að fara alveg eftir bókstaf laganna. Skynsemi er t.d. nokkuð sem Kristinn Jakobsson lét ekki þvælast fyrir sér í mati sínu á aðstæðum þegar hann rak Jón Guðna útaf gegn Val.
Auðvitað gat Magnús dómari rekið þennan nr. 11 útaf eftir seinna brotið á innan við mínútu. En hann mat það greinilega svo að brotið hefði ekki verið svo gróft að leikmaðurinn verðskuldaði ekki annað tækifæri. Hann lét leikmanninn líka greinilega vita að hann væri á síðasta sjens frá sér. Auðvitað sá reyndur þjálfari eins og Ólafur Kristjánsson hvert stefndi og skipti leikmanninum útaf. Hvað varðar brotið á Jóni Orra undir lok leiksins er ég sammála því að leikmaður Breiðabliks í því tilfelli hefði átt að fá seinna gula spjald sitt og þar með rautt. Þar urðu dómaranum á mistök.
Þrátt fyrir þetta fannst mér dómarinn koma vel frá leiknum í gær, hann leyfði leiknum að fljóta vel, beitti hagnaðarreglu vel og var ekki að stöðva leikinn í tíma og ótíma. Þá er ég á þeirri skoðun að einhverjir dómarar hefðu verið fljótir að dæma mark Almarrs af og metið það svo að markvörður Blika hefði haft hendur eða hendi á knettinum áður en Almarr setti hann í markið.
Það má ekki gleyma því að knattspyrnuleikur er skemmtilegastur þegar ellefu leikmenn spila á móti ellefu. Dómarar hafa í sumar því miður gert of mikið af því að taka ákvarðanir í æsingi og rifið rauða spjaldið upp úr rassvasanum án umhugsunar. Það var ekki gert í gær og því ber að fagna. Það besta við knattspyrnu er að við þurfum ekki alltaf að vera sammála! En mér finnst þú kannski aðeins hafa misskilið póstinn, það sem ég var að reyna benda á er að þessi svokallaða skynsemi virðist sjaldan liggja beint fyrir þegar að okkar menn eru annars vegar. Er ég ekkert ósáttur við að dómari leiksins hafi sleppt því að senda Blikana af velli en það hljóta sömu reglur að eiga gilda fyrir bæði lið? Þetta hefur bara gerst of oft að okkur sé refsað fyrir einhver brot en leikmenn annara liða eru að sleppa með mun vægari dóma til að þetta geti talist einhver óheppni! Ég get ekki fyrir mitt litla líf séð hvernig Magnús dómari átti góða dag? Er ekki samkvæmni the name of the game fyrir dómara, það eiga að gilda sömu reglur fyrir bæði lið sama hver staðan er? Ég hef ekki hug á því að telja upp öll atriðin sem sköruðust í gær en samkvæmur sjálfum sér var hann Magnús ekki. Mér er alveg slétt sama hvort að menn dæma hendi eða ekki hendi slíkt virðist hafa tendens til að jafnast út en þegar að menn fá að teika og tækla aðra leikmenn án þess að fá tiltal eða spjöld ítrekað þá finnst mér að okkur vegið. Sbr að Blikar voru búnir að fá nokkra sénsa fyrir slíkt en hann Jón Guðni fékk gult spjald sem eru því miður farin að telja skart vegna þess að hann er grófasti leikmaður deildarinnar fyrir sína fyrstu tæklingu! Slíkt getur því miður ekki talist að vera samkvæmur sjálfum sér en eins og ég sagði áður hver hefur rétt á sinni skoðun og mín er ekkert betri eða verri en þín. Hún er bara réttari :-)
Football, bloody hell!
|
|
Staða: Nýliði Hópar: Member
Skráði sig: 11.06.10 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
Mér fannst nú Magnús dæma bara þokkalega lengi vel. Það vita þó allir að það eru innlendir tískustraumar í dómgæslunni. Aldrei fékk Móði spjald; hann var nefnilega svo prúður. Stefna sumarsins varðandi Jón Guðna liggur nú fyrir. Vonandi breytist hún að ári ef hann á þá enn eitthvað undir íslenskum knattspyrnudómurum. Spjaldanotkun KJ gagnvart Fram og dómgæsla yfirleitt (t.d. gegn Fylki) er dularfullt fyrirbrigði sem ég kann ekki að skýra, ja, og líklegast fæstir.
|
|
 Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 02.12.08 Bréf: 110 Staður: Reykjavik
|
Svo er líka bara mjög gott að geta fengið að hrósa sér og sínum svolítið!! http://www.mbl.is/mm/sport/efstadeild/2010/07/28/domarar_fylgjast_vel_med_einkunum_sinum_i_mogganum/Hvernig sem á þetta er litið er því miður vöntun í stéttina og afleiðingar af stórum mistökum eru engar, einnig virðist vera alveg sama hversu vitlausir sumir dómar eru þá er sjaldan sem spjöld eða annað er leiðrétt eftir á af þessari blessu nefnd hjá KSÍ.. En hér set ég punkt við þetta fjandans tuð í mér.
Football, bloody hell!
|
|
Staða: Nýliði Hópar: Member
Skráði sig: 23.11.08 Bréf: 26 Staður: Reykjavík
|
Þetta var slappara en allt sem maður hefur áður séð í sumar í kvöld. Kristján fékk rautt fyrir að fara í boltann hjá rangstæðum manni! Mér misbýður gjörsamlega þar sem KSÍ býður upp og held að við ættum að segja okkur úr þessu klíkusambandi og ganga í færeyska knattspyrnusambandið í staðinn.
|
|
Staða: Nýliði Hópar: Member
Skráði sig: 11.06.10 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
Þetta var unninn leikur þar til rangstaðan (eða rangstöðurnar) fór fram hjá dómurunum og Kristján fauk út af fyrir vikið. Spurning hvort ekki átti að vera rautt þegar Hjálmar var tæklaður. En svona hefur þetta bara verið í sumar, oft á tíðum. Hvað ætli sé í gangi þarna hjá dómaraklúbbnum?
|
|
 Staða: Áhugamaður Hópar: Member
Skráði sig: 02.12.08 Bréf: 110 Staður: Reykjavik
|
Veit ekkert um hvort að Guðjón hafi verið rangstæður en ef ekkert er dæmt þá verður Kristján að hafa vit á því að fara ekki í einhverja tæklingu þarna því eins og menn vita fjúkum við alltaf útaf fyrir slíkt. 1-0 fyrir KR á 30 mín hefði ekki verið neitt agalegt miðað við hvernig þetta var að spilast.
En svo er annað í stöðunni 1-0 fyrir KR fer þessi blessaði hafsent í þvílíka sólatæklingu á Hjalla og ef menn ætla að fara eftir reglunum er það klárt rautt en auðvitað var þetta bara venjuleg tækling og menn fá bara gult fyrir slíkt..
Bjóst svo sem ekki við miklu fyrir þennan leik en enn og aftur eru það þessi blessuðu vafa-atriði sem virðast ávallt detta gegn okkur, ef Joe hefði ekki verið ranglega flaggaður í fyrri hálfleik og ef ef ef ef. En punkturinn er að við erum með grófasta lið deildarinnar og getum ekki unnið gegn KR í Frostaskjólinu!!
Take that to the bank..
Football, bloody hell!
|
|
|
Guest |