Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Stjarnan á plastinu Valkostir
Stefán P
Skráð: 28. August 2010 21:52
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 21.11.08
Bréf: 270
Staður: Norðurmýri
Það er ómögulegt að ekki sé kominn spjallþráður um Stjörnuleikinn. Sjálfseyðingahvöt Keflvíkinga og Valsmanna gerir það að verkum að við eigum alla möguleika á að taka fimmta sætið í deildinni (markmiðið hlýtur að vera 5ta sætið og að fá ekki minna en 34 stigin sem við enduðum með í fyrra). Til þess megum við hins vegar ekki tapa á morgun.

Leikurinn gegn Stjörnunni á plastteppinu var botninn í fyrra. Ég labbaði út af þeim leik og hélt að við myndum falla. Það er engin stemning fyrir að endurtaka þá frammistöðu núna.

Tómas og Jón Gunnar eru báðir í banni - og spurning hvort Hjálmar getur leikið á þessu undirlagi eða hvort það er yfirhöfuð ráðlegt? Það er spurning hvernig best sé að leysa uppstillingarmálin. Vörnin okkar var afar slök í síðasta leik og okkur hefði verið refsað grimmilega gegn yngri framherjum.

En strákarnir geta þó a.m.k. notað það sem mótivasjón, að maður vill ekki gera varnarmistök gegn Stjörnunni - af ótta við að þeir bresti þá í eitthvert aulalegt fagn og hundraðþúsund manns verði búin að horfa á mistökin fyrir hádegi daginn eftir á jútúb.
JEJ
Skráð: 28. August 2010 22:02

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 273
Staður: Stykkishólmur

Jamm. Svo fer Stjarnan á hausinn í vetur, þegar þeir þurfa að borga reikninginn fyrir heita vatnið undir gervigrasinu...
Hannes AJ
Skráð: 28. August 2010 22:03
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 27.11.08
Bréf: 185
Staður: Reykjavík
Já, nú er lag. Og menn HLJÓTA svo að vera reynslunni ríkari frá í fyrra.
Spurning hvort við setjum ekki Hlyn í hafsentinn og og Jón Guðna á miðjuna í staðinn fyrir Jón Gunnar. Með fullri virðingu, ekkert Jóns Orra rugl. Hann hefur bara ekki það líkamlega sem þarf í miðvörðinn. Og Joe Tillen inn fyrir Tómas, ekki spurning.
ÁFRAM FRAM!
Steingrímur Árni
Skráð: 29. August 2010 08:39
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 05.12.08
Bréf: 259
Staður: Heiðargerði
Nú er lag því með sigri í kvöld þá förum við upp í 5. sæti. Ég vil sjá Hlyn leysa Jón Gunnar af á miðjunni. Menn hljóta að hafa lært eitthvað af leiknum í fyrra. Ég gekk líka út af þeim leik í stöðunni 4 - 0 eftir 70 mínútur. En ef mig misminnir ekki þá var Kristján í banni þá og Auðun og Jón Guðni voru ekki alveg á sömu bylgjulengd í vörninni. Aðaláhyggjur kvöldsins eru fólgnar í því að þá Jón Guðna , Kristján og Sam vantar alla aðeins 1 spjald til að fara í bann og Stjörnumenn eru fljótir maður. En hvað er þetta með Hjálmar og gervigrasundirlag? Hann er nú ekkert gamalmenni drengurinn.
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.310 seconds.

 
  • Sjóvá
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • N1
  • Sportis
  • Sjóvá
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Bootcamp
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún