Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Tóku "Klósett-fagn"..... Valkostir
pjotr
Skráð: 29. August 2010 20:04

Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 24.11.08
Bréf: 350
Staður: Reykjavík
.....og skitu svo á sig.
Mikið rosalega var þetta ljúft í kvöld.

Hjartans hamingjuóskir Framarar !!!


ps. Mikið rosalega er þetta orðið þreytt þarna hjá Stjörnunni - plebbaleg látalæti Synd að dómarar skuli leyfa svona fíflagang.
JEJ
Skráð: 29. August 2010 20:13

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 273
Staður: Stykkishólmur

Gaman að þessum sigri og Stjarnan fer í sex stiga klúbbinn með Selfossi þetta árið.

Seinna mark Ívars var hans sjöunda í sumar og alls 20. í Efstu Deild, öll fyrir Fram.
Tómas
Skráð: 29. August 2010 20:20
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 19.08.10
Bréf: 20
Seiglusigur, eins og við vorum þekktir fyrir framan af móti. Glæsilegt! Alveg ljóst hvorir voru klósettburstinn í þessum leik!
Stefán P
Skráð: 29. August 2010 20:35
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 21.11.08
Bréf: 270
Staður: Norðurmýri
Óskaplega er nú gaman að koma raddlaus heim af vellinum og með adrenalínið í hámarki.

Við vorum óskaplega seinir í gang í kvöld. Fyrir utan fínar 10 mínútur í byrjun, þá vorum við hugmyndasnauðir, treystum á kýlingar og einhvern veginn var eins og okkar menn væru alltaf aðeins og langt frá andstæðingunum. Ég taldi ekkert marktækifæri í fyrri hálfleik annað en markið hans Ívars.

Í seinni hálfleik var allt annað að sjá liðið. Stjarnan komst í 2:1 og dró sig þá alltof mikið aftur á völlinn. Á sama tíma færðum við Fjóluson á miðjuna og settum Jón Orra í hafsentinn og fórum allt í einu að geta sótt upp miðjuna.

Hannes átti góðan leik og hélt okkur inni í þessu í fyrri hálfleik með góðum úthlaupum. Átti líka svakalega vörslu í lokin.Dóri setti ný viðmið í að hlaupa og tækla út um allan völl. Varnarmennirnir okkar áttu líka flottar rispur upp völlinn - bæði Kristján í seinni hálfleiknum og Sam í sigurmarkinu. Jóhannes Valgeirsson hefur átt betri leiki í dómgæslu.

Það er bara meiriháttar gott að sækja þrjú stig í Garðabæinn og sex stig alls gegn Stjörnunni. Garbæðingar eru með fínt lið og verða líklega okkar helstu andstæðingar í slagnum um fimmta sætið.

Ég vil sjá sigra í þremur næstu leikjum (Keflavík, Valur og Haukar). Og við eigum alveg að geta náð því í þessu formi. Svo verður bara að koma í ljós hvort FH-leikurinn í lokaumferðinni mun skipta einhverju máli fyrir Hafnfirðinga. Aðalmálið er að við ætlum ekki að fá færri stig en þessi 34 sem við náðum í fyrra. Það þýðir að við þurfum lágmark 8 stig í síðustu fjórum leikjunum.
KristoferK
Skráð: 29. August 2010 20:47
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 25.05.09
Bréf: 53
Staður: Reykjavík
Kominn tími á einn góðan dramatískan winner. Ívar Björnsson átti flottan leik, magnaða stungusendingu og svo virkilega vel klárað sigurmark.

Gaman að sjá karakterinn og baráttuna þegar við lendum undir, meira af þessu. Vinnum Keflavík heima með þessu.
Grimur
Skráð: 29. August 2010 20:57
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 15.07.09
Bréf: 56
Staður: Reykjavík

Fjári undarlegt mót. Og eina ferðina enn er ekki alveg öll von úti með þetta fjandans Evrópusæti. Ef "vinir okkar" í KR halda uppteknum hætti og taka FH í næsta leik þá eru Hafnfirðingar ekki í svo ómögulegri fjarlægð . .
Stefán P
Skráð: 29. August 2010 21:01
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 21.11.08
Bréf: 270
Staður: Norðurmýri
FH-ingar eru bikarmeistarar - það hjálpar ekkert að skjóta þeim aftur fyrir sig. Við þurfum að komast uppfyrir KR...

Svo: áfram Hafnarfjörður á morgun.
Grimur
Skráð: 29. August 2010 21:29
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 15.07.09
Bréf: 56
Staður: Reykjavík

Æ, það er rétt, Stefán. Tók sig upp einhver vanhugsuð bjartsýni. Kemur ekki fyrir aftur . .
bgs
Skráð: 29. August 2010 22:13
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 12.05.09
Bréf: 21
Já mikið var þetta sætt, tími til komin að hlutirnir færu að detta með okkur í lokin.
Ég vill sjá Jón Guðna birja á miðjunni í næsta leik og Jón Orra í miðverðinum
, alt annað að sjá leik liðsins eftir að hann kom framar á völlinn :-)
ÁFRAM FRAM.
Steingrímur Árni
Skráð: 29. August 2010 23:26
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 05.12.08
Bréf: 259
Staður: Heiðargerði
Mér finnst alveg full ástæða til að halda í vonina um evrópusæti því td. KR ingar eiga mjög erfitt prógram eftir. Þeir eiga eftir að spila við FH , Breiðablik og Fylki heima og svo ÍBV og Grindavík úti. En burtséð frá því þá er frábært að sjá að liðið okkar sé komið í gang eftir erfiða tíma. Og svo gerðust líka undur og stórmerki því við sluppum alveg við spjöld í kvöld.
Einar SH
Skráð: 30. August 2010 17:19
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 11.06.10
Bréf: 10
Staður: Reykjavík
Flestu leyti sammála einkunnagjöf Moggans:

MM
Ívar Björnsson.

M
Jón Guðni Fjóluson, Samuel Tilllen, Halldór Hermann Jónsson og Hlynur Atli Magnússon. Jón Guðni átti þó að vera með MM og Hjálmar með M. Finnst vel gert við Hlyn með M í þetta skipti.
KristoferK
Skráð: 30. August 2010 20:00
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 25.05.09
Bréf: 53
Staður: Reykjavík
KR að tapa enn einu sinni gegn FH í Frostaskjólinu. Ef þeir misstíga sig svo frekar gegn toppliðunum ÍBV og Breiðablik erum við komnir í séns.

Annars má snúa þessum grýlum við mín vegna á næsta ári. KR vinnur FH loksins á heimavelli... en tapar gegn Fram.
Fram-tíðin
Skráð: 30. August 2010 22:42
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 30.08.10
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Einar SH skrifaði:
Flestu leyti sammála einkunnagjöf Moggans:

MM
Ívar Björnsson.

M
Jón Guðni Fjóluson, Samuel Tilllen, Halldór Hermann Jónsson og Hlynur Atli Magnússon. Jón Guðni átti þó að vera með MM og Hjálmar með M. Finnst vel gert við Hlyn með M í þetta skipti.


Er algjörlega ósammála þessu. Hlynur var mjög góður í leiknum og átti M skilið fyrir frammistöðuna og ég vona að hann haldi stöðunni í næsta leik. Aftur á móti er ég sammála því að Jón Guðni átti skilið 2M enda okkar besti maður í leiknum.
Stefán P
Skráð: 30. August 2010 22:50
Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 21.11.08
Bréf: 270
Staður: Norðurmýri
Miðjumaðurinn Jón Guðni átti 2M skilið.

Varnarmaðurinn Jón Guðni náði sér ekki eins vel á strik og virkaði utan við sig á köflum í fyrri hálfleik.
Leftarinn
Skráð: 31. August 2010 10:55
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 15.06.09
Bréf: 101
Staður: Rvk
Er þetta ekki spurning um Jón Orra með Kristjáni Hauks og Jón Guðna á miðjuna ? Gæti alveg séð þetta fyrir mér svona:


Hannes
Daði Jón Orri Kristján H Sam T

Halldór Jón Gunnar

Jón Guðni

Almarr Ívar

Hjálmar
Fram-tíðin
Skráð: 31. August 2010 11:13
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 30.08.10
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Jón Orri er ekki nógu stór og sterkur fyrir miðvörðinn. Frekar að setja hann í hægri bakvörðinn fyrir Daða. Ég vil hafa Hlyn með Kristjáni í miðverði og setja Jón Guðna á miðjuna.
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.717 seconds.

 
  • Sjóvá
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • N1
  • Sportis
  • Sjóvá
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Bootcamp
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún