Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Ívar Ingmarsson á lausu.... Valkostir
Blár í gegn
Skráð: 7. January 2012 19:45
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 12.09.10
Bréf: 151
Staður: Gautaborg
Var víst riftur undan samningi...fullt af mönnum á lausu,við þurfum að kaupa einhverja leikmenn til að styrkja breidina,og hvað með Ívar?Hann þekkir allavega enska boltan í gegn og Fram spilar dálítið enskan fótbolta,svo hann myndi passa vel inní leik liðsins,Guðmundur Sævarsson er líka að leita sér að nýju félagi og Hannes Sigurðsson er nýkominn frá Rússlands ævintýrinu sínu.Þessir þrír hafa allir mikla reynslu og ég myndi giska á að þeir væru ekki mjög dýrir.Auðvitað ber ég mikla virðingu fyrir Todda og hann á loka orðið,enn það sakar varla að nefna spennandi kosti á markaðnum.Ég veit að það eru einhverjar stafnsettningavillur í þessu hjá mér ,enn ég á frekar erfitt með að sjá þær sjálfur svo fólk má endilega benda mér á þær móðgast alls ekki.Með vetrar bláar kveðjur
Blár í gegn.
Réttu nafni Úlfur Karlsson
Lilja
Skráð: 11. January 2012 15:12
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 23.06.09
Bréf: 82
Mér kemur á óvart sú áhersla sem sumir hér leggja á að fá afdankaða knattspyrnumenn við enda síns ferils til liðs við Fram. Er nokkur þörf á slíku? Liðsuppstilling okkar undir lok síðasta keppnistímabils var sú heilsteyptasta lengi vel, hópurinn nú að mestu leyti óbreyttur, bretarnir fjórir reyndust okkur ómetanlegir og ungir og efnilegir strákar fengu að sýna hvað í þeim býr og stóðust væntingar. Spennandi verður að sjá hvernig Þorvaldur þróar málin áfram á nýju keppnistímabili. Helst finnst mér vanta inn í hópinn markaskorara með Lennon, en þeir vaxa víst ekki á trjánum, þannig að tíu tólf marka maður á keppnistímabili er víst vandfundinn. En við höfum hann kannske nú þegar í hópnum, það kæmi mér ekki á óvart þó að Hjálmar "brilleraði" í sumar, þá er Arnar spurningamerki og Ívar nær sér vonandi af þeim erfiðu meiðslum sem hafa verið að hrjá hann undanfarin ár.

Og svo er það ávallt tilhlökkunarefni þegar Fram hefur nýtt keppnistímabil með leik í Reykjavíkurmótinu. Á morgun er siglt úr vör gegn ÍR kl. 21. Ég spái hagstæðum byr fyrir Fram í sumar!
JEJ
Skráð: 13. January 2012 10:40

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 277
Staður: Stykkishólmur

Varðandi senter, var ekki Stefán Birgir aðeins að minna á sig í gærkveldi?
Lilja
Skráð: 13. January 2012 11:16
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 23.06.09
Bréf: 82
Það er aldrei að vita hvað Stefán Birgir gerir, fái hann tækifæri í liðinu. Hann hefur sýnt það í 2. flokki að hann hefur nef fyrir markaskorun. Er samt full eigingjarn leikmaður að mínu mati, en engum er betur treystandi en Þorvaldi til að leiðbeina honum varðandi það, því strákurinn hefur líka sýnt það að hann getur verið hörkuspilari þegar sá gállinn er á honum. Og svo skorar Orri alltaf reglulega, hörkugott mark hjá honum í gærkvöldi, eins og öll hin voru reyndar líka. Það er eins gott að janúarmánuði ljúki, og félagaskiptaglugganum í Englandi loki þar með, áður en Manchester City heyrir af Steven Lennon!!
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.226 seconds.

 
  • Sjóvá
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • N1
  • Sportis
  • Sjóvá
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Bootcamp
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún