Content

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Reykjavíkurmótið 2012 Valkostir
JEJ
Skráð: 13. January 2012 08:10

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 277
Staður: Stykkishólmur

Góð byrjun í gær:
http://www.sporttv.is/Alltefnid/Efni/223

og margir yngri piltar að stíga sín fyrstu skref....ekkert nema jákvætt. Mér segir svo hugur að það verði öllu meiri fyristaða í næstu viku, þegar KR kemur í heimsókn.
pjotr
Skráð: 13. January 2012 08:31

Staða: Hálf atvinnumaður
Hópar: Member

Skráði sig: 24.11.08
Bréf: 362
Staður: Reykjavík
FramTV var líka á staðnum:

http://www.youtube.com/user/framherjarnir
pallivilla
Skráð: 13. January 2012 09:15
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 07.02.09
Bréf: 33
Staður: Reykjavík
Langar hrósa bæði fram.is og Fram TV fyrir góða umfjöllun og myndir frá leiknum. Flottur leikur hjá okkur og ÍR-ingar virkuðu ekki mikil mótstaða! Lennon stóð upp úr í yfirburðaliði og er einfaldleg frábær leikmaður!
JEJ
Skráð: 13. January 2012 10:56

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 277
Staður: Stykkishólmur
Frá aldamótum í Rvk. móti er Fram 7-0-2 gegn ÍR, 24 skoruð fengin á sig 4 mörk.

1 14.3.2001 Leiknisvöllur ÍR Fram 0-3
2 24.3.2002 GerviLaugardal ÍR Fram 0-3
3 26.1.2003 Egilshöll ÍR Fram 1-5
4 4.2.2005 Egilshöll Fram ÍR 2-0
5 9.2.2006 Egilshöll Fram ÍR 4-0
6 28.1.2007 Egilshöll ÍR Fram 1-0
7 28.2.2008 Egilshöll ÍR Fram 1-0
8 6.2.2009 Egilshöll ÍR Fram 1-2
9 12.1.2012 Egilshöll Fram ÍR 5-0

Við sjáum að Fram er í basli með ÍR 2007-2009, en leikurinn í gær minnir meira á 2001-2006 (og ekki er það tími sem við Framarar minnumst af þakklæti að neinu öðru leyti).

Framarar að sækja í sig veðrið eða ÍR-ingar að dala? kemur í ljós í sumar!
Tómas
Skráð: 13. January 2012 16:05
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 19.08.10
Bréf: 22
Frábært til þess að vita að þessir bresku strákar sem stóðu sig svo vel í fyrra skuli vera með okkur í undirbúningnum, og það frá fyrsta leik. Fyllir mann bara bjartsýni. Góðir leikmenn gera líka aðra í kringum sig betri.
SuperMario
Skráð: 16. January 2012 14:03

Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 02.12.08
Bréf: 111
Staður: Reykjavik
Ég ætla ekkert að fara að missa mig yfir sigri á arfaslöku liði ÍR en ég ætla að leyfa mér að vera hæfilega bjartsýnn fyrir sumarið.. Frábært að hafa náð samningi við þessa frábæru leikmenn sem Toddi landaði um mitt sumar í fyrra og að þeir skuli vera með í undirbúningnum fyrir átökin í sumar fylla mann smá von um að þetta gæti reynst gott mót fyrir okkar drengi!

KK
AK

Football, bloody hell!
Siggi
Skráð: 17. January 2012 22:07
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 23.11.08
Bréf: 26
Staður: Reykjavík
Ég ætla að leyfa mér að vera óhóflega bjartsýnn og segja að það sé tími kominn á að þessi klúbbur taki stóran titil á þessu ári. Það er líka vel við hæfi nú þegar 40 ár eru liðin síðan nokkrar goðsagnakenndar hetjur urðu meistarar fyrir okkur
Blár í gegn
Skráð: 20. January 2012 13:34
Staða: Áhugamaður
Hópar: Member

Skráði sig: 12.09.10
Bréf: 151
Staður: Gautaborg
Held að ég sé pínu sammála sigga,Auðvitað löngu kominn tíma á að taka allavega einn titil í sumar.Kringar þurftu að vísu t.d að bíða ein átta ár eftir þeim stóra,svo þetta getur auðvitað tekið smá tíma,enn eigum við ekki bara að segja að við gerum eins og kr í fyrra og tökum þetta tvöfalt í sumar,og Steven Lennon verði markakóngur deildarinnar ,það þýðir ekkert annað enn vera bara brattur sýnist bjartir tímar framundan .
JEJ
Skráð: 4. February 2012 11:18

Staða: Stjórnandi
Hópar: Administration , Member

Skráði sig: 19.11.08
Bréf: 277
Staður: Stykkishólmur

Fram er í þeirri einstöku og afar fyndnu stöðu í dag, að gera KR greiða með því að taka stig gegn Leikni. Að sama skapi væri synd að sverta góða frammistöðu í riðlinum með einhverju öðru en góðum úrslitum í þessum leik.

Þróttarar eða Fylkir næsti andstæðingur.
bgs
Skráð: 10. February 2012 10:42
Staða: Nýliði
Hópar: Member

Skráði sig: 12.05.09
Bréf: 22
Nú er bara að mætta og stiðja okkar menn til sigurs á KR á mánudagkvöldið.
Áfram Fram.
Notendur að skoða þennan þráð
Guest


Spjallborð
Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

RSS : RSS

YAFVision Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
This page was generated in 0.228 seconds.

 
  • Sjóvá
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • N1
  • Sportis
  • Sjóvá
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • Bootcamp
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún